139. löggjafarþing — 106. fundur,  7. apr. 2011.

fjármálafyrirtæki.

659. mál
[12:16]
Horfa

Frsm. meiri hluta viðskn. (Magnús Orri Schram) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það má eiginlega segja að með þeirri lagabreytingu sem verið er að gera sé á ferð lögskýring. Við erum einungis að skýra það efnislega sem kom fram í tilskipuninni sem um ræðir en var að mati hins breska dómstóls ekki skýrt nógu vel í þeim íslensku lögum á Alþingi sem sett voru og byggð á grunni þeirrar tilskipunar. Hér erum við sem sagt að ræða lögskýringu en ekki efnislega breytingu á lögunum því að tilskipunin er alveg skýr. Við erum einungis að árétta að íslensku lögin endurspegli efni tilskipunarinnar.