139. löggjafarþing — 107. fundur,  7. apr. 2011.

fjölmiðlar.

198. mál
[12:28]
Horfa

Frsm. meiri hluta menntmn. (Skúli Helgason) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir áliti meiri hluta hv. menntamálanefndar um frumvarp til laga um fjölmiðla.

Nefndin hefur fjallað ítarlega um málið, kallað til sín hátt á þriðja tug gesta, leitað umsagna frá yfir 60 aðilum og fengið í hendur umsagnir frá þriðjungi þeirra. Ég mun hér á eftir rekja helstu efnislegu breytingartillögur meiri hlutans eins og tíminn leyfir en alls gerir meiri hlutinn tillögur um hátt á fjórða tug breytinga á frumvarpinu.

Fyrst vil ég þó fara nokkrum almennum orðum um þá löggjöf hér er undir, tilurð hennar, tilgang og þýðingu fyrir almenning og starfsemi fjölmiðla í landinu. Fyrst ber þess að geta að hér er viðamikil löggjöf á ferð þar sem þess er freistað að setja í fyrsta sinn heildstæð lög um fjölmiðla á Íslandi og starfsemi þeirra. Kveikjan er svokölluð hljóð- og myndmiðlunartilskipun Evrópuþings og Evrópuráðs frá desember 2007 og stór hluti frumvarpsins, u.þ.b. tveir þriðju hlutar þess, á uppruna sinn í þeirri tilskipun. Þriðjungur frumvarpsins á sér hins vegar upptök í gildandi útvarpslögum og lögum um prentrétt auk nýrra ákvæða sem mörg hver lúta að réttindum og skyldum fjölmiðla. Ég tel raunar að þar sé einhver mikilvægasti kafli frumvarpsins og nefndin hefur varið miklum tíma sínum í að fjalla um einstök ákvæði hans.

Í rannsóknarskýrslu Alþingis er fjallað um mikilvægi fjölmiðla sem upplýsingaveitu fyrir almenning og vettvang borgaranna fyrir skoðanaskipti um þjóðfélagsmál. Þar er hlutverk fjölmiðla flokkað í þrennt, aðhaldshlutverk, upplýsingahlutverk og umræðuhlutverk. Tvö fyrrnefndu hlutverkin eru nátengd því að fréttir fjölmiðils séu jafnan hlutlægar og óháðar hagsmunaöflum. Í því skyni og til að styrkja trúverðugleika fjölmiðilsins hafa fjölmiðlar í nágrannalöndum okkar víða sett reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði annars vegar og gagnsæi eignarhalds hins vegar. Aðhalds- og upplýsingahlutverk fjölmiðla er mikilvægara en nokkru sinni við núverandi aðstæður í samfélagi okkar þegar allar meginstoðir þess eru teknar til endurmats og þörf fyrir gagngerar umbætur á samfélaginu er brýn í kjölfar hruns hugmyndafræði sem einkenndist af afskiptaleysi um siðferðisleg málefni og þjónkun við hugarheim skyndigróða og bráðaútrásar.

Í skýrslu rannsóknarnefndarinnar er sérstaklega fjallað um gildi þess að settar séu reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði fjölmiðla. Slíkar reglur séu sérstaklega brýnar í fámennum samfélögum eins og okkar þar sem nálægð kunningjasamfélagsins býður heim hættunni á sjálfsritskoðun eða eins og segir í skýrslu fjölmiðlanefndar frá árinu 2005: „Þess eru mörg dæmi að fjölmiðlar fjalli ekki um fyrirtæki eða hagsmunaaðila ef það getur komið sér illa fyrir fjölmiðilinn sjálfan, eigendur hans eða starfsfólk.“ Í rannsóknarskýrslu Alþingis segir, með leyfi forseta:

„Ritstjórar og blaðamenn kunna þá að forðast umfjöllun um mál sem gætu skaðað viðskiptahagsmuni fjölmiðilsins eða haft áhrif á þeirra eigin starfsframa.“

Í rannsóknarskýrslu Alþingis er að finna greiningu á þætti fjölmiðla í þeirri meðvirkni með fjármálakerfinu sem einkenndi missirin fyrir hrun og viðrað það sjónarhorn fjölmiðlamanna sjálfra að þeir hafi verið mjög meðvitaðir um mikilvægi þess að sýna stjórnvöldum aðhald og verja þar sjálfstæði sitt og trúverðugleika en á hinn bóginn hafi ekki gætt sömu árvekni og aðhalds í garð fjármálamarkaðarins, enda birtist áhrifavald hans í öðrum og e.t.v. vinsamlegri myndum.

Í frumvarpinu er reynt að koma til móts við þær ábendingar sem fram komu í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Í skýrslunni var bent á nauðsyn þess að efla sjálfstæða og hlutlæga fjölmiðlun með því að styrkja fagleg og fjárhagsleg skilyrði fjölmiðlunar í landinu. Einnig var bent á að styrkja þyrfti sjálfstæði ritstjórna, setja eignarhaldi einkaaðila á fjölmiðlamarkaði hófleg mörk og upplýsa hverjir séu eigendur fjölmiðlanna á hverjum tíma. Enn fremur var bent á að koma þyrfti á faglegu eftirliti með fjölmiðlum með það fyrir augum að tryggja að þeir ræki af ábyrgð hlutverk sitt í lýðræðisríki með almannahagsmuni að leiðarljósi.

Frumvarpið tekur á flestum þessum atriðum með þeirri undantekningu helst að ekki er mælt fyrir um fjárhagslegan stuðning hins opinbera við fjölmiðlana í landinu. Slík fordæmi þekkjast þó erlendis, einkum útgáfustyrkir til prentmiðla og staðbundinna miðla, og ég tel að það sé fullt tilefni til að setja á fót sérstaka vinnu með fulltrúum stjórnvalda og hagsmunaaðila í greininni sem skoði kosti og galla opinbers fjárstuðnings við fjölmiðla og leggi jafnframt mat á mismunandi leiðir í því sambandi. Ég sé t.d. fyrir mér að mikil þörf væri fyrir sjóð sem mundi styrkja verkefni í rannsóknarblaðamennsku jafnt í prentmiðlum sem ljósvakamiðlun. Slíkur sjóður gæfi fjölmiðlunum svigrúm til að vinna vandaðar fréttaskýringar sem illu heilli vilja verða út undan í því rekstrarumhverfi sem fjölmiðlar á Íslandi búa við í dag og í þeim asa hversdagsins sem kallar á að fylla fjölmargra fréttatíma á degi hverjum.

Meiri hluti nefndarinnar ræddi einnig um stöðu staðbundinna fjölmiðla en þeir eru afar mikilvægur hluti menningar- og afþreyingarframboðs í byggðarlögum víðs vegar um landið. Þeir hafa mikilvægu hlutverki að gegna í héraði og fyrir það nærumhverfi sem þeir eru sprottnir úr. Með hliðsjón af þessu vill meiri hlutinn mælast til þess að stjórnvöld skoði sérstaklega hvort og þá hvernig styðja eigi við bakið á starfsemi staðbundinna miðla með hliðsjón af opinberum stuðningi við slíka miðla annars staðar á Norðurlöndum. Meiri hlutinn vill einnig benda á að styrkir og ívilnanir til fjölmiðla að þessu leyti eiga heima í sérlögum en ekki í heildstæðri rammalöggjöf um fjölmiðla.

Virðulegi forseti. Þessu frumvarpi er m.a. ætlað að stuðla að tjáningarfrelsi, rétti almennings til upplýsinga, fjölmiðlalæsi, fjölbreytni og fjölræði í fjölmiðlum, að ógleymdri eflingu neytendaverndar á þessum vettvangi.

Það má segja að skjólstæðingar þessa frumvarps séu tveir, annars vegar almenningur í landinu og hins vegar fjölmiðlarnir sjálfir. Hagsmunir þessara aðila fara saman í varðstöðu um tjáningarfrelsið en fjölmiðlar þurfa einnig að þræða vandratað einstigi milli þess að flytja almenningi fréttir og upplýsingar um samfélagsleg málefni og hins að gera það með þeim hætti að ekki brjóti á lögvörðum réttindum einstaklinga og hópa. Hlutverk stjórnvalda er hér að setja almennan ramma fyrir fjölmiðla að starfa innan en gæta þess jafnframt að stíga ekki yfir þau mörk sem skilja að almenna markmiðssetningu annars vegar og óeðlilega íhlutun hins vegar. Í meðferð menntamálanefndar á frumvarpinu hafa verið gerðar ýmsar breytingar sem flestar hafa þann tilgang að bæta starfsumhverfi og auka réttindi fjölmiðla og fjölmiðlamanna, ekki síst með grundvallarmarkmiðið um vernd tjáningarfrelsis að leiðarljósi.

Virðulegi forseti. Ég mun nú rekja helstu efnislegar breytingartillögur meiri hluta nefndarinnar. Meiri hlutinn leggur til breytingar á kaflanum um stjórnsýslu en í frumvarpinu er lögð til breytt stjórnsýsla í þessum geira, þ.e. að stofnuð verði og sett á fót fjölmiðlanefnd sem verði sjálfstæð stjórnsýslunefnd en þær breytingar eru annars vegar til komnar vegna þeirra skyldna sem hvíla á íslenska ríkinu í nýrri hljóð- og myndmiðlunartilskipun og hins vegar vegna þeirra áforma sem felast í frumvarpinu um heildstæða löggjöf á vettvangi fjölmiðlunar.

Nefndin ræddi skipan og verksvið fjölmiðlanefndar, þar á meðal stöðu hennar sem sjálfstæðs stjórnvalds sem hefur endanlegt úrskurðarvald í málum á verksviði nefndarinnar. Meiri hlutinn vill benda á að með stofnun fjölmiðlanefndar eru m.a. uppfylltar kröfur um eftirlit með fjölmiðlum sem komu fram í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og eiga sér fordæmi í nær öllum löndum sem við berum okkur saman við. Þessi skipan, að fela sjálfstæðri stjórnsýslunefnd að fjalla um málefni fjölmiðla og leiða til lykta með úrskurði ágreining um málefni þeirra, tekur mið af skipan mála á fjölmiðlamarkaði í Svíþjóð og Danmörku og er í samræmi til tilmæli Evrópuráðsins og Evrópuþingsins.

Reyndar er það svo að öll aðildarríki EES-samningsins, utan Lúxemborgar og Íslands, hafa komið sér upp sjálfstæðum stjórnsýslustofnunum sem hafa það hlutverk að framfylgja ákvæðum fjölmiðlalaga. Nefndin ræddi hvort ástæða væri til að setja á fót sjálfstæða áfrýjunarnefnd sem skjóta mætti úrskurðum fjölmiðlanefndar til, samanber áfrýjunarnefnd samkeppnismála. Það var niðurstaða meiri hlutans að slík breyting mundi draga úr sjálfstæði fjölmiðlanefndarinnar og gæti einnig aukið verulega kostnað við stjórnsýslu fjölmiðlamála. Meiri hlutinn vill benda á að eftir sem áður er að sjálfsögðu heimilt að höfða mál til ógildingar ákvörðunum fjölmiðlanefndar fyrir dómstólum.

Hæstv. mennta- og menningarmálaráðherra skipar fimm manns í fjölmiðlanefnd til fjögurra ára samkvæmt ákvæðum frumvarpsins. Meiri hlutinn tekur undir sjónarmið umsagnaraðila um að mikilvægt sé að nefndarmenn séu ekki í hagsmuna- eða fjárhagstengslum við þá aðila sem falla undir gildissvið laganna þannig að draga megi óhlutdrægni þeirra í efa. Vill meiri hlutinn í þessu sambandi ítreka að um hæfi nefndarmanna fer eftir ákvæðum stjórnsýslulaga og gerir breytingartillögu þar að lútandi. Það er hins vegar álit meiri hlutans að eðlilegt sé að fagmenn sem starfað hafa á vettvangi fjölmiðla, hafa starfsreynslu af þeim vettvangi og sérþekkingu, eigi aðild að fjölmiðlanefnd þó að jafnframt sé mikilvægt að þeir séu ekki í beinum hagsmunatengslum við þá fjölmiðla sem þeim er ætlað að hafa eftirlit með. Leggur meiri hlutinn því til þá breytingu að reynsla af fjölmiðlastarfi verði tilgreind sem ein af hæfiskröfum nefndarmanna í fjölmiðlanefnd.

Einstakir umsagnaraðilar hafa gagnrýnt að stétt fjölmiðlamanna eigi ekki fulltrúa í fjölmiðlanefndinni sem þar með hafi ekki á að skipa neinum sem þekkir af eigin raun starfsskilyrði og verklag fjölmiðlamanna. Á hinn bóginn hef ég rakið að það er nauðsynlegt að gæta þess að í nefndinni séu ekki einstaklingar í beinum hagsmunatengslum við starfandi fjölmiðla, þ.e. t.d. starfsmenn þeirra. Í þessu skyni leggur meiri hlutinn til og telur að vel komi til greina að einstaklingar sem hafa aflað sér víðtækrar reynslu af fjölmiðlastarfi komi til greina sem fulltrúar í nefndinni. Ég tel að það komi vel til greina í því sambandi að Blaðamannafélag Íslands eigi fulltrúa í nefndinni með þeim fyrirvörum sem nefndir hafa verið um hæfisskilyrði og mun leggja til við nefndina að það verði skoðað milli 2. og 3. umr. þessa frumvarps.

Virðulegi forseti. Einn mikilvægasti kafli frumvarpsins fjallar um réttindi og skyldur fjölmiðlaveitna og langar mig að dvelja nokkuð við einstök ákvæði þess kafla í ræðu minni. Þar er fyrst að telja eitt veigamesta ákvæði frumvarpsins sem snýr að sjálfum kjarna tjáningarfrelsisins, þ.e. ritstjórnarlegt sjálfstæði. Í samræmi við tillögur þverpólitískrar fjölmiðlanefndar Alþingis frá árinu 2005 er í frumvarpinu kveðið á um að fjölmiðlaveita setji sér sjálf reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði. Það er skoðun meiri hlutans að sjálfstæði ritstjórnar sé grundvallarforsenda þess að hlutlæg fjölmiðlun þrífist í landinu. Þessar reglur eiga að gegna því hlutverki að skapa fréttamönnum skjól gagnvart hugsanlegum tilraunum eigenda fjölmiðla til að hafa áhrif á fréttaumfjöllun eða ritstjórnarstefnu miðilsins. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að eigendur fjölmiðla hafi forgöngu um að setja slíkar reglur í samráði við blaða- og fréttamenn og eftir atvikum starfsmannafélög þeirra. Meiri hluti nefndarinnar leggur til þá breytingu á þessu ákvæði að samráð skuli haft við fagfélög blaða- og fréttamanna, sem í núverandi umhverfi væru Blaðamannafélag Íslands og Félag fréttamanna við Ríkisútvarpið, enda hafa þau félög allar faglegar forsendur til að taka þátt í mótun slíkra reglna um ritstjórnarlegt sjálfstæði og mun fremur en starfsmannafélög fjölmiðlanna, sem eðli málsins samkvæmt hafa aðra tilvísun og hlutverk en að ráða málum sem tengjast fyrst og fremst samskiptum eigenda fjölmiðlanna við blaða- og fréttamenn.

Ástæða er til að vekja sérstaka athygli á því að í reglunum ber að kveða á um hvaða skilyrði þurfi að uppfylla svo koma megi til áminningar eða uppsagnar viðkomandi blaða- og fréttamanna eða yfirmanna þeirra á ritstjórnum og fréttastofum. Með þessu er lögfest vernd blaða- og fréttamanna gegn órökstuddum uppsögnum. Meiri hlutinn telur þetta ákvæði afar mikilvæga réttarbót fyrir stétt blaða- og fréttamanna í landinu.

Ég vil nefna það sérstaklega í þessu sambandi að þegar þverpólitísk nefnd skilaði af sér tillögum árið 2005 var það niðurstaða hennar að ekki skyldu vera viðurlög við brotum á þessari grein en ég tel mikilvægt að nefndin skoði það milli 2. og 3. umr. hvort ekki sé eðlilegt að styrkja ákvæðið með því að tengja það viðurlögum þannig að eigendur fjölmiðla geti ekki látið hjá líða að uppfylla þetta ákvæði, sem í mínum huga er einhver mikilvægasta forsenda trausts og trúverðugleika fréttamiðla í þessu landi.

Virðulegi forseti. Önnur mikilvæg forsenda tjáningarfrelsis fjölmiðla og sjálfstæðrar fréttamiðlunar í landinu er að heimildarmenn blaða- og fréttamanna njóti verndar sem tryggð er með lögum. Það er eitt mikilvægasta nýmæli frumvarpsins að kveða skýrt á um vernd þeirra heimildarmanna að fréttum eða fréttatengdu efni sem óskað hafa nafnleyndar. Þessi vernd nær til viðkomandi blaða- og fréttamanna en jafnframt annarra starfsmanna viðkomandi fjölmiðla sem kunna að hafa aðgang að upplýsingum um viðkomandi heimildarmenn sem gætu varpað hulunni af þeim. Heimildarverndin sætir samkvæmt ákvæðinu einungis þeim takmörkunum sem koma fram í 119. gr. laga um meðferð sakamála og lúta að framburði vitna.

Það er ljóst að umrætt ákvæði er eitt það afdrifaríkasta í frumvarpinu og við höfum spánnýtt dæmi um það að sótt er að heimildarverndinni á grundvelli gildandi laga, samanber lögbannskröfu eignarhaldsfélagsins Horns á hendur DV sem forsvarsmenn blaðsins hafa túlkað sem atlögu að heimildarverndinni. Ég tel fulla ástæðu til að skoða hvort styrkja þurfi heimildarverndina enn frekar með því að þrengja undanþáguheimildina í sakamálalögunum við tilvik þar sem alvarlegir glæpir eru annars vegar. Það þyrfti að gerast með breytingum á sakamálalöggjöfinni og hef ég þegar tekið málið upp fyrir hönd nefndarinnar við hv. formann allsherjarnefndar. Við höfum leiðsögn í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu þar sem lögð er rík áhersla á að vernd trúnaðarsambands fjölmiðlafólks og heimildarmanna þeirra sé mikilvægur þáttur í tjáningarfrelsi fjölmiðla í lýðræðissamfélagi. Dómstóllinn hefur þar að lútandi veitt vernd heimildarmanna mikið vægi í úrlausnum sínum og ræðst niðurstaða hans í flestum tilvikum af því hvort takmörkunin teljist nauðsynleg í lýðræðissamfélagi. Til þess að svo teljist vera þarf takmörkun að beinast að því að vernda mikilsverða hagsmuni almennings en þeir hagsmunir sem dómstóllinn hefur talið heimildarverndinni yfirsterkari eru eingöngu alvarlegir glæpir á borð við morð, manndráp, nauðgun, misnotkun barna, landráð eða sambærilega glæpi. Meiri hluti nefndarinnar vill árétta að rík rök hníga að því að dómstólar hér á landi líti til sambærilegra sjónarmiða við mat á því hvort aflétta megi heimildarvernd.

Virðulegi forseti. Ljóst er að fjölmiðlar leika lykilhlutverk í lýðræðissamfélagi með því að upplýsa almenning, vera vettvangur gagnrýninnar þjóðfélagsumræðu og veita stjórnvöldum nauðsynlegt aðhald. Grunngildi vandaðrar fjölmiðlunar koma fram í 26. gr. frumvarpsins sem ber yfirskriftina Lýðræðislegar grundvallarreglur og á sér fyrirmynd í fjölmiðlalögum flestra ríkja í kringum okkur.

Meiri hlutinn leggur til þá breytingu að ekki verði veittar heimildir til fjölmiðlanefndar að grípa til viðurlaga vegna brota gegn ákvæðum þessarar greinar. Með þessu vill meiri hlutinn árétta að ákvæðið um lýðræðislegar grundvallarreglur beri að túlka sem stefnuyfirlýsingu um grundvallarreglur í fjölmiðlum en ekki sé með því ætlunin að setja tjáningarfrelsi íslenskra fjölmiðla sérstakar skorður.

Meiri hlutinn ræddi ítarlega mörk tjáningarfrelsis fjölmiðla annars vegar og friðhelgi einkalífs hins vegar en þessi réttindi eru hvor tveggja varin í stjórnarskrá lýðveldisins sem og í þeim alþjóðasamningum sem Ísland hefur skuldbundið sig til að fylgja. Hjá Mannréttindadómstól Evrópu hefur verið staðfest ítrekað að fjölmiðlar hafa mikilvægu og nauðsynlegu hlutverki að gegna í lýðræðissamfélagi. Í ljósi þess hefur dómstóllinn litið svo á að það sé ekki aðeins skylda fjölmiðla heldur einnig réttur almennings að fá slíkar upplýsingar. Ríkar ástæður þurfa því að vera til staðar svo skerðing á starfsemi þeirra teljist réttlætanleg en þar vegast á tjáningarfrelsi fjölmiðla annars vegar og friðhelgi einkalífs hins vegar. Ekki er með lögum hægt að slá í gadda hversu nærri friðhelgi einkalífs fjölmiðlar mega ganga en meiri hlutinn vill standa vörð um tjáningarfrelsi fjölmiðla þó að vissulega þurfi þeir einnig að hafa í huga að einstaklingar njóta stjórnarskrárvarinna réttinda þegar kemur að einkamálum þeirra. Niðurstaðan er hagsmunamat í hverju tilviki þar sem meta þarf hvort vegur þyngra hagsmunir einstaklings að njóta friðar um einkahagi sína og mannorð eða nauðsyn þess að viðhalda frjálsri lýðræðislegri umræðu um málefni er varða almenning.

Meiri hlutinn leggur til veigamikla efnisbreytingu á þeirri grein er lýtur að jafnréttismálum og leggur jafnframt til þá breytingu að fjölmiðlaveitur skuli virða jafnrétti kynjanna sem og að tryggja að mismunandi sjónarmið komi fram í umfjöllun um fréttir og fréttatengt efni, jafnt karla sem kvenna. Ljóst er að víða er pottur brotinn í þessum efnum eins og fram kom í umsögn Jafnréttisstofu um frumvarpið. Rannsóknir hafa gefið ótvírætt til kynna að hlutur kvenna sé mjög fyrir borð borinn í umfjöllun fjölmiðla, mun oftar sé leitað til karlkyns álitsgjafa en kvenna, karlar séu í miklum meiri hluta viðmælenda í fréttum og fréttatengdum þáttum og svo mætti áfram telja. Hér mætti nefna sem dæmi að gerð var rannsókn á fréttum fjölmiðla um fjármálafyrirtæki í aðdraganda bankahrunsins en þar kom fram að karlar voru 97% viðmælenda en konur einungis 3% Einnig var gerð rannsókn á umfjöllun fjölmiðla um fólk í stjórnmálum fyrir síðustu alþingiskosningar sem sýndi að karlar fengu meiri umfjöllun en fjöldi þeirra á framboðslistum gaf tilefni til, en konur hins vegar minni umfjöllun en fjöldi þeirra og staða á framboðslistum gaf tilefni til. Meiri hlutinn leggur á það þunga áherslu að ákvæði jafnréttislaga verði virt í störfum og umfjöllun fjölmiðla á Íslandi enda er jafnrétti kynjanna einn af hornsteinum lýðræðisins.

Meiri hlutinn leggur til þá breytingu á ákvæðinu um lýðræðislegar grundvallarreglur að fellt verði brott hugtakið ósæmilegar athafnir en meiri hlutinn telur að það hugtak sé of matskennt og erfiðleikum bundið að skilgreina hvað þar getur fallið undir. Meiri hlutinn leggur einnig til breytingar á orðalagi ákvæðisins í þeim tilgangi að gera það skýrara og markvissara. Þannig verði bætt við ákvæðið breytingu um að fjölmiðlar skuli kappkosta að uppfylla kröfur um hlutlægni og nákvæmni í umfjöllun sinni um fréttir og fréttatengt efni og gæta þess að mismunandi sjónarmið komi fram.

Í IV. kafla frumvarpsins, þar sem fjallað er um réttindi og skyldur fjölmiðlaveitna, er í 30. gr. fjallað um aðgengi sjón- og heyrnarskertra að myndmiðlunarefni. Fölmiðlaveitur sem miðla myndefni skulu eins og kostur er leitast við að gera þjónustu sína aðgengilega sjón- og heyrnarskertum. Nefndin fjallaði um málið og vill meiri hlutinn beina þeim tilmælum til fjölmiðla að huga einnig að öðrum hópum samfélagsins sem búa við fötlun auk þess stóra hóps íbúa landsins sem ekki hefur íslensku að móðurmáli, t.d. með útdrætti frétta á einföldu máli.

Virðulegi forseti. Eitt þeirra ákvæða sem vakið hafa nokkra umræðu í samfélaginu í þessu frumvarpi er 27. gr. sem fjallar um bann við hatursáróðri. Ég vil varpa því fram hér að ég tel að sú umræða hafi að stærstum hluta verið á misskilningi byggð, en einstakir aðilar hafa túlkað greinina sem viðleitni löggjafans og stjórnvalda til ritskoðunar. Þeir sem svo mæla misskilja í grundvallaratriðum meginatriði þessa ákvæðis og líta fram hjá þeirri staðreynd að hér er ekki vísað til hefðbundinnar stjórnmálaumræðu eða skoðanaskipta í fjölmiðlum. Hatursáróður er samkvæmt alþjóðlegri skilgreiningu efni í fjölmiðlum þar sem hvatt er til ofbeldis, fordóma eða fordómafullrar hegðunar gegn einstaklingi eða hópi af fólki eða með því að vanvirða, smána, hræða eða ógna einstaklingi eða hópi. Af þessari skilgreiningu má sjá að ekki er hægt að fella hefðbundna gagnrýni, skoðanaágreining eða stjórnmálaumræður í fjölmiðlun undir þessa skilgreiningu. Meiri hlutinn leggur til þá breytingu að ákvæði um bann við hvatningu til refsiverðrar háttsemi verði fært undir þessa grein en jafnframt að heimild til viðurlaga á grundvelli hennar verði að svo stöddu einskorðuð við hvatningu til refsiverðrar háttsemi.

Virðulegi forseti. Einn mikilvægasti tilgangur þessa frumvarps er að vernda börn gegn auglýsingum og skaðlegu efni. Ljóst er að mikill stuðningur er við það meðal almennings á Íslandi að hlífa börnum við auglýsingum í tengslum við barnatíma í sjónvarpi en ríflega 70% aðspurðra lýstu sig andvíg slíkum auglýsingum í könnun sem mennta- og menningarmálaráðuneytið lét gera í apríl 2008. Það er mat meiri hlutans að vernd barna og ungmenna gegn auglýsingum og skaðlegu efni sé aðkallandi samfélagslegt verkefni. Rannsóknir staðfesta að börn eru annars vegar mjög móttækileg fyrir utanaðkomandi áhrifum, ekki síst úr fjölmiðlum, en hafa hins vegar yfirleitt takmarkaðan þroska til að greina að hlutlægar upplýsingar og auglýsingar í viðskiptaskyni og hafa því ekki forsendur til að meta á gagnrýninn hátt þann boðskap sem miðlað er í gegnum auglýsingar.

Í umsögn um frumvarpið kom fram sú athugasemd að með 36. gr. frumvarpsins, um réttinn til andsvars, væri vegið að sjálfstæði fréttamanna en í greininni er mælt fyrir um almennar reglur um rétt þeirra sem telja að á þeim hafi verið brotið með röngum staðhæfingum í fjölmiðli. Nefndin leggur áherslu á að sambærileg ákvæði hafa verið í lögum hér á landi um árabil. Í 18.–21. gr. gildandi laga um prentrétt er að finna ákvæði þar sem mælt er fyrir um leiðréttingarskyldu útgefanda eða ritstjóra sem og í 11. gr. gildandi útvarpslaga um andsvarsrétt sem reist er á 23. gr. hljóð- og myndmiðlunartilskipunarinnar. Meiri hlutinn áréttar að með frumvarpinu er ætlunin að samræma regluverk á þessu sviði þar sem ein almenn regla gildi um andsvarsrétt í fjölmiðlum og að reglan taki einnig til hljóð- og myndmiðlunar eftir pöntun og rafrænna miðla. Reyndar má færa fyrir því rök og er rétt að leggja á það áherslu að með þessu frumvarpi sé hlutur fjölmiðlamanna styrktur frá því sem nú er hvað varðar réttinn til andsvars, því að í ákvæði 36. gr. eru settar fram ýmsar takmarkanir sem styrkja rétt fjölmiðla til að synja beiðnum um andsvar en umræddum reglum er ætlað að koma í veg fyrir að réttur til andsvars verði misnotaður og að eyða ágreiningi að þessu leyti ef upp kemur.

Hjá nokkrum umsagnaraðilum kom fram gagnrýni á að frumvarpinu sé ekki ætlað að setja takmarkanir á stærð eignarhluta í fjölmiðlafyrirtækjum í því skyni að tryggja dreift eignarhald. Vill meiri hlutinn í því sambandi benda á að í markmiðsgrein frumvarpsins er m.a. kveðið á um að stuðla eigi að fjölræði í fjölmiðlun en með því er vísað til þess að fjölmiðlar séu ekki undir yfirráðum eins eða fárra aðila. Þar að auki felur frumvarpið í sér reglur um skráningarskyldu fjölmiðla og aukna upplýsingaskyldu þeirra. Þessar reglur eru stefnumarkandi og er ætlað að koma til móts við skýlausar kröfur samtímans um gagnsæi eignarhalds á fjölmiðlum. Því til viðbótar vill meiri hlutinn benda á að í bráðabirgðaákvæði í frumvarpinu er kveðið á um stofnun þverpólitískrar og faglegrar nefndar í þeim tilgangi að kanna samþjöppun á eignarhaldi á fjölmiðlamarkaði og að hún geri tillögur í frumvarpsformi um viðeigandi takmarkanir á eignarhaldi á fjölmiðlum. Verksvið þessarar nefndar er skýrt afmarkað og eiga niðurstöður hennar að liggja fyrir samkvæmt frumvarpinu eigi síðar en 1. maí nk. Meiri hlutanum þykir sá tími vera of skammur og leggur til að nefndin fái lengri tíma til að skila sínu verki eða til 1. júní 2011.

Virðulegi forseti. Í frumvarpinu er að finna mikilvæg ákvæði um flutningsskyldu og flutningsrétt fjölmiðlaveitna og fjarskiptafyrirtækja sem ætlað er að ýta undir virka samkeppni á íslenskum fjölmiðlamarkaði. Þar er m.a. litið til ábendinga Samkeppniseftirlitsins sem hefur í úrskurðum sínum gagnrýnt að fjölmiðlaveitur geti synjað fjarskiptafyrirtæki um að dreifa efni fjölmiðlaveitu nema veitan hafi sjálf með höndum alla innheimtu áskriftargjalda af þeim viðskiptavinum sem kaupa aðgang að efninu í gegnum fjarskiptafyrirtæki. Slíkt fyrirkomulag er í andstöðu við meginregluna sem við finnum í Evrópu þar sem jafnan er að finna skýran greinarmun á heildsölu og smásölu sjónvarpsefnis ef svo má segja. Meiri hlutinn leggur til breytingar á þessu ákvæði sem eru þó fyrst og fremst orðalagsbreytingar.

Í ljósi þeirra hagsmuna sem hér eru uppi telur meiri hlutinn hins vegar eðlilegt að áskilja að Póst- og fjarskiptastofnun skuli taka tillit til meðalhófs og leita álits fjölmiðlanefndar áður en ákvörðun er tekin um hver skuli innheimta áskriftargjald af notendum sem og um heildsölu og smásölu efnis.

Virðulegi forseti. Nefndin ræddi nokkuð ákvæði um ábyrgð og viðurlög á ritefni og hljóð- og myndefni og leggur til ákveðnar breytingar á þeim sem m.a. er ætlað að bæta réttarstöðu blaða- og fréttamanna. Þar má nefna rýmkun á ákvæði um tilvitnanir í nafngreinda einstaklinga með þeim hætti að ekki verði lengur gerð krafa um að tilvitnanir séu hafðar beint eftir viðmælanda heldur sé nægjanlegt að réttilega sé haft eftir, þ.e. að áherslan verði á efnisinnihald en ekki orðrétta tilvitnun. Hér á landi er hefð fyrir því að flytjandi efnis í ljósvakamiðlum og höfundur ritefnis í prentmiðlum beri á því efni ábyrgð. Í frumvarpinu er ekki vikið frá þeim reglum en með hliðsjón af þeim er lagt til að fjölmiðlaveitur beri ábyrgð á greiðslu stjórnvaldssekta, fésekta og skaðabóta sem starfsmanni hans kann að vera gert að greiða. Þessi regla er í gildandi útvarpslögum, samanber e-lið 26. gr. þeirra laga. Líkt og annars staðar á Norðurlöndunum er þessi regla nátengd reglum um sjálfstæði ritstjórna, hún eflir tjáningarfrelsi og stuðlar að lýðræðislegri umræðu. Meiri hlutinn vill einnig vísa til þess að fjölmiðlaveitur geta eflt gildi þessarar reglu enn frekar og kveðið á um það í reglum um ritstjórnarlegt sjálfstæði að starfsmenn þeirra verði ekki endurkrafðir að þessu leyti. Nefndin vill beina því til fjölmiðlaveitna að æskilegt væri að þær sæju sér almennt fært að kveða á um skaðleysi starfsmanna sinni í reglum um ritstjórnarlegt sjálfstæði.

Meiri hlutinn vill einnig benda á að annars staðar á Norðurlöndunum eru ábyrgðarreglur í fjölmiðlum ekki samhæfðar en þær eiga það hins vegar sammerkt að útgefendur eða ritstjórar bera meginábyrgð á því efni sem miðlað er. Þar eru ábyrgðarreglur nátengdar reglum um sjálfstæði ritstjórna, en ritstjórar og aðrir fjölmiðlamenn eiga þá ekki á hættu að efni sé ekki birt ef útgefandi vill ekki taka fjárhagslega ábyrgð á greiðslu sekta eða fébóta.

Virðulegi forseti. Nokkuð var um það rætt af hálfu einstakra umsagnaraðila að ekki væri tekið á hlutverki Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði í þessu frumvarpi til fjölmiðlalaga. Það kom fram í umsögnum nokkurra þeirra að óeðlilegt væri að setja heildstæða löggjöf um fjölmiðla án þess að hún tæki sérstaklega á málefnum Ríkisútvarpsins hvað þetta varðar.

Því er til að svara að í undirbúningi er ný löggjöf um Ríkisútvarpið þar sem m.a. verður fjallað um fjármögnun þess, þar með talið sölu auglýsinga, umsvif Ríkisútvarpsins á þeim markaði og þar verður tekið á þeirri mikilvægu umræðu um hvort og þá hvernig eigi að takmarka umsvif Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði. Um það eru vitanlega skiptar skoðanir en ég vil nálgast þá umræðu með opnum huga og tel mjög mikilvægt að það sé eðlilegt samkeppnisumhverfi á íslenskum fjölmiðlamarkaði þannig að bæði sé tryggt að fyrir hendi sé öflugt almannaþjónustuútvarp í opinberri eigu en jafnframt að einkamiðlar fái skilyrði til að sinna sínu hlutverki með sóma.

Skapast hefur nokkur umræða um skilgreiningar hugtaka sem fylgja þessu frumvarpi. Ég mun ekki fara mörgum orðum um þær breytingartillögur sem nefndin gerir í því efni en nefni þó tvær þeirra. Annars vegar leggjum við til að í stað hugtaksins fjölmiðlaþjónustuveitandi komi annað hugtak og öllu þjálla að mati meiri hluta nefndarinnar sem er fjölmiðlaveita. Hins vegar að í stað orðsins viðskiptaorðsending, sem er yfirheitið um auglýsingar, kostun og vöruinnsetningu, komi orðið viðskiptaboð. Meiri hluti nefndarinnar telur að bæði þessi hugtök falli betur að þeirri ágætu markmiðssetningu sem kemur fram í frumvarpinu um eflingu íslenskrar tungu um að tungumál í löggjöf skuli vera vandað, einfalt og skýrt.

Ég hef nú rakið í stærstu dráttum helstu efnislegu breytingartillögur sem meiri hluti menntamálanefndar leggur til á þessu frumvarpi til fjölmiðlalaga. Ég vil þakka hv. menntamálanefnd sérstaklega fyrir prýðilega vinnu í meðferð þessa máls.

Undir álit meiri hlutans rita hv. þingmenn Oddný G. Harðardóttir, Lilja Mósesdóttir, Eygló Harðardóttir, með fyrirvara, Þráinn Bertelsson, Jónína Rós Guðmundsdóttir, Margrét Tryggvadóttir, með fyrirvara, og sá sem hér stendur.

Þetta er viðamikil löggjöf sem er í smíðum. Nefndin hefur gert á frumvarpinu fjölmargar breytingar sem ég tel að bæti málið og vonandi fær það áfram málefnalega umræðu hér í dag.