innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta.
Virðulegi forseti. Ég vil fyrst hrósa hv. þm. Magnúsi Orra Schram fyrir að taka þátt í umræðunni. Ég held að það sé afskaplega mikilvægt. Ég er þeirrar skoðunar að ef við mundum setjast yfir málið af heilum hug, en þá þarf hv. þingmaður og aðrir hv. þingmenn að hafa stuðning frá hæstv. ríkisstjórn, þá gætum við í það minnsta komið okkur saman um hvað við erum ósammála um því ekki er allt rétt sem hv. þm. Magnús Orri Schram segir hér. Þeir sem hlusta á þetta heyra að nú séum við með tóman sjóð, ekkert, við höfum einhverja yfirlýsingu sem við vitum að hefur ekki lagagildi, þetta sé eini valkosturinn og ef við samþykkjum þetta söfnum við í sjóð 7 milljörðum á ári.
Það sem hv. þingmaður gleymir að segja er að við höfum tryggingarsjóð sem ábyrgist 20.887 evrur. Þar er deild sem í eru 20 milljarðar sem munu væntanlega fara upp í Icesave-skuldbindinguna ef þetta samkomulag gengur eftir og hvort heldur sem er verða þeir notaðir í það. Hugmynd meiri hlutans er að halda þeirri deild áfram og ef borga þarf meira í hana verða skattgreiðendur að gera það. Við byrjum algjörlega á núlli vegna þess að hæstv. ríkisstjórn ákveður það. Það er alveg rétt að það mun taka mjög langan tíma. Vonandi kemur ekkert upp á áður en einhver trúverðug upphæð verður komin þarna inn.
Hæstv. ráðherra Árni Páll Árnason minntist á að það væri mjög erfitt að hafa forgang á innstæðum í tryggingarsjóðnum vegna þess að þá verður svo erfitt fyrir bankana að fjármagna sig. Þetta er rétt hjá hæstv. ráðherra. Á mannamáli þýðir þetta að þegar bankarnir fjármagna sig hefur það forgang fram yfir innstæðutryggingarnar. Ef banki fellur hefur það áhrif á hve mikið fer í innstæðutryggingarsjóðinn því þá ættu menn fjármögnunina til hliðar. Líkur eru á að það verði ekki helmingur eins og stundum er núna.
Hv. þingmaður fullyrðir að eignirnar séu betri í bankakerfinu. Ég hef mjög miklar áhyggjur af bankakerfinu, ekki bara á Íslandi heldur almennt. Við sjáum hvernig þetta hrynur núna í Evrópulöndunum og svo sannarlega er ekkert himnaríki í bankamálum í Bandaríkjunum. Stóra myndin sem við horfum á núna er að hagnaður bankanna kemur til vegna þess að menn eru að reikna upp eignasafnið. Á sama tíma sjáum við að ekkert sem heitið getur er að gerast í skuldamálum fyrirtækja. Ég skrifaði grein í Pressuna í dag um það hvernig nú er farið gegn hagsmunum neytenda í endurútreikningi á erlendum lánum. Ég hef stórar áhyggjur af því, ef ekkert verður gert næstu 10 árin, að við munum sjá hér að stór hluti fjölskyldna og fyrirtækja verður í skuldafangelsi og gerir ekkert annað en greiða vexti. Bankarnir munu líka tapa á því en þeir hafa eiginlega ekki neinar tekjur sem heitið geta af hefðbundinni bankastarfsemi núna. Og allt þetta höfum ég og hv. þingmaður farið í gegnum í hv. viðskiptanefnd. Þetta innstæðutryggingarkerfi er mjög stór hluti vandans en er bara partur af því. Þetta er gríðarlega stórt mál sem við erum ekki búin að fara í.
Við höfum ekki enn skilgreint hvað við ætlum að gera við sparisjóðina. Hér er hv. þingmaður í einhverjum leik með það að við tökum ekki mark á yfirlýsingu sem var gerð í tíð ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar í hruninu haustið 2008. Síðan þá höfum við sett 250 milljarða eða meira, kannski 350 milljarða, í bein framlög til banka og ábyrgða þannig að mikið vatn hefur runnið til sjávar. Við ættum að vera komin svo langt að vita hvert við ætlum að stefna með fjármálakerfi okkar en við vitum það ekki.
Hvað ætla menn að gera við sparisjóðakerfið? Ætla menn að renna því inn í stóru bankana? Ætla menn að fækka stóru bönkunum enn frekar þannig að áhættan dreifist enn minna? Þetta eru spurningar sem við verðum að svara. Ætlum við að skilja á milli fjárfestingarbanka og viðskiptabanka, virðulegi forseti? Ætlum við að gera það?
Varðandi það að einhver mótsögn sé í því þegar við bendum á það augljósa að fleiri bankastofnanir þurfi að heyra undir tryggingakerfið og þar af leiðandi sé glæpur að segja: Við þurfum að fara í samvinnu við aðrar þjóðir, og að við eigum bara að ganga í Evrópusambandið ef við vogum okkur að segja það, þá gengur sú röksemdafærsla ekki upp. Bankakerfið í dag er alþjóðlegt vandamál og menn þurfa ekki að vera læstir í Evrópusambandið til að horfast í augu við það og reyna að leysa það. Árið 2014 gerist ekkert annað hjá Evrópusambandinu en að það kemur skýrsla — ekki ákvörðun heldur skýrsla.