139. löggjafarþing — 109. fundur,  11. apr. 2011.

raforkuöryggi á Vestfjörðum.

537. mál
[17:19]
Horfa

iðnaðarráðherra (Katrín Júlíusdóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég held að menn geti alltaf verið ánægðir þegar fólk er samtaka hvar í flokki sem það stendur. Hv. þingmanni til gleði get ég sagt að ég kynnti þessa skýrslu í ríkisstjórn degi áður en hann lagði fyrirspurnina fram þannig að tilviljanirnar halda áfram og eru skemmtilegar.

Við hljótum að fagna því að í þessu máli séum við, ég og hv. þingmaður, algjörlega sammála. Þessi skýrslugerð er til komin með þeim hætti að í september 2009 fór ég á Vestfirði til að ræða við atvinnurekendur um þær aðstæður sem menn búa við þar. Við sáum auðvitað strax að skynsamlegast væri að setja raforkumálin, sem við höfum öll heyrt um og hafa lengi verið vandamál fyrir vestan, í ferli.

Það skiptir máli að allar ákvarðanir sem teknar eru um uppbyggingu á raforkukerfinu fyrir vestan eða á Vestfjörðum miði í eina og sömu áttina. Því fannst mér líka mjög mikilvægt að í ráðgjafarhópnum væru aðilar sem byggju fyrir vestan og kæmu úr atvinnulífinu. Ráðgjafarhópurinn um orkuöryggi á Vestfjörðum samanstóð af Guðna Jóhannessyni orkumálastjóra, Matthildi Helgadóttur Jónudóttur, framkvæmdastjóra Snerpu á Ísafirði, og Þorgeiri Pálssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða.

Afhendingaröryggi rafmagns á Vestfjörðum hefur um langt bil verið óviðunandi og það hefur leitt til þess að samkeppnisstaða svæðisins er mun lakari en annarra svæða á landinu. Það skiptir máli fyrir okkur Íslendinga alla þegar við löðum hingað erlenda fjárfestingu að við séum ekki með dimm svæði eða slökkt svæði, eins og segja má að Vestfirðir séu, heldur verðum við að geta boðið allt landið sem kost fyrir erlenda fjárfesta þegar þeir horfa til atvinnuuppbyggingar. Ég held að það sé ekki síst vegna þess sem við erum öll sammála um að Vestfirðir verði með þegar kemur að uppbyggingu til lengri tíma litið.

Sá samfélagslegi kostnaður sem hv. þingmaður nefndi og menn hafa reiknað út að er þarna vegna ótryggrar afhendingar er náttúrlega ekki boðlegur. Það á ekki bara við um samfélagið fyrir vestan heldur landið allt. Í þeirri skýrslu sem hér hefur verið kynnt var gerð könnun á meðal atvinnurekenda á svæðinu á áhrifum þessa óöryggis á starfsemi þeirra og komu þar fram mjög sláandi tölur. Ef ég man rétt — jú, ég sé það hér að tæplega helmingur fyrirtækja er meira en 20 mínútur að koma starfsemi sinni aftur í gang ef slegið hefur út. Það er gríðarlegur kostnaður og ég held jafnvel að menn telji 400 millj. kr. vanáætlað í því sambandi. Það skiptir máli, virðulegi forseti.

Hv. þingmaður spyr mig hvað sé fram undan. Hér er ýmislegt lagt til en á næstu dögum mun ég skipa fastan samráðshóp sem í munu eiga sæti fulltrúar íbúa á svæðinu, fulltrúar atvinnurekenda á svæðinu og fulltrúar Landsnets og Orkubús Vestfjarða. Þessum hópi er ætlað að teikna upp framtíðaráætlun um hvernig lokið verði við hringtenginu raforkuflutnings fyrir Vestfirði og jafnframt er honum ætlað að gera heildstæða rannsóknaráætlun fyrir raforkuframleiðslu á Vestfjörðum sem verður þá hluti af undirbúningi næsta áfanga rammaáætlunar. Þar er ekki síður þörf á að spýta í ef menn ætla að horfa til þess að mögulegir virkjanakostir fyrir vestan verði tilbúnir.

Í skýrslunni má segja að tillögunum sé skipt í tvennt, annars vegar eru tillögur til skemmri tíma og hins vegar til lengri tíma. Ég tek að sjálfsögðu undir það sem komið hefur fram og er ætlun mín að leggja lóð mitt á vogarskálina, ásamt hv. þingmanni og íbúum svæðisins, til að bæta stöðuna þannig að orkuöryggi fyrir vestan verði sambærilegt við það sem gerist í öðrum landshlutum. Virðulegi forseti, við viljum líka bæta við nýjum tækifærum fyrir Vestfirðinga til að geta byggt upp atvinnu á orkunni sem þar er að finna.