139. löggjafarþing — 109. fundur,  11. apr. 2011.

framkvæmd heilsustefnu, virkjun fyrirmynda o.fl.

599. mál
[18:15]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það er augljóst að ýmislegt hefur verið í gangi og er það vel, en okkur vantar algjörlega mælingarnar og það er ekki gott. Sömuleiðis hefur ekki verið unnið skipulega að þessum markmiðum eins og lagt var upp með þannig að þarna höfum við misst úr nokkur ár. Við höfum hins vegar tækifæri til að gera betur og ég hvet hæstv. ráðherra til að gera það. Eins og ég nefndi eru sérstakar áherslur á næringuna í skólanum og þegar við erum komin í fjórða neðsta sætið, þar sem við viljum alls ekki vera, og erum með helmingi fleiri offitusjúklinga en þau lönd sem við berum okkur saman við, er alveg ljóst að þetta er nokkuð sem við þurfum að taka sérstaklega á. Við verðum að vita stöðuna. Ef eitthvað má betur fara í framkvæmdinni eiga menn bara að breyta því. Það er ekki aðalatriðið. Aðalatriðið er að ná árangri.

Sömuleiðis hvet ég hæstv. ráðherra til að líta á þessar fyrirmyndir því að það er margsannað að það hjálpar. Við höfum náð árangri í vímuvörnum með því að vinna skipulega að því að reyna að minnka vímuefnanotkun í framhaldsskólum. Það hefur gengið mjög vel og það er m.a. gert með því að virkja fyrirmyndir. Ég man vel eftir því þegar við létum gera veggmyndir á sínum tíma með frábærum íþróttamönnum, virðulegi forseti, sem voru og eru glæsilegar fyrirmyndir. Þetta eru ekki bara silfurdrengirnir heldur ýmsir aðrir, sérstaklega íþróttamenn en þó líka listamenn af báðum kynjum. Þetta er mikil hvatning fyrir (Forseti hringir.) unga fólkið til að láta vímuefnin eiga sig.