niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar og framhald Icesave-málsins, munnleg skýrsla forsætisráðherra.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka fyrir að skýrsla forsætisráðherra, um niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar og framhald Icesave-málsins, skuli hafa komist á dagskrá í dag. Það þarf í sjálfu sér ekki að ræða mjög lengi um niðurstöðu kosninganna af því að niðurstöðurnar eru skýrar, nefnilega þær að þjóðin hafnaði þeim samningi sem unnið hafði verið að á Alþingi, honum var hafnað. Næstu skref í málinu eru sannarlega mikilvæg eins og forsætisráðherra hefur gert að umtalsefni og það ætti að vera mjög auðvelt fyrir okkur hér á þingi og þjóðina alla að sameinast um mikilvægustu næstu skref. Þau eru einfaldlega þau að halda hátt á lofti okkar ýtrustu rökum, halda hátt á lofti hagsmunum Íslendinga. Við erum ekki að biðja sérstaklega um að dómsmeðferð þessa máls verði hraðað, alls ekki. Upp á okkur stendur eingöngu í augnablikinu að svara áminningarbréfi ESA. Vandi okkar er sá að ríkisstjórnin, þeir sem fara með fyrirsvar fyrir þjóðina gagnvart öðrum löndum, nýtur ekki trausts og það er djúpstæður vandi fyrir okkur Íslendinga.
Við þurfum líka að horfa til þess héðan af þinginu að þegar mikill meiri hluti þingsins samþykkir jafnstórt mál og hér er undir þá birtist líka í þjóðaratkvæðagreiðslunni vantraust í garð þingsins. Það verður ekki fram hjá því litið og það er engum greiði gerður þegar þjóðin horfir hingað inn til þingsins með því að við reynum að líta undan, þvert á móti.
En vandi ríkisstjórnarinnar og vantraustið í hennar garð er ekki bara til komið af þessu eina máli. Það er ekki bara vegna sögu Icesave-málsins sem ríkisstjórnin nýtur ekki trausts. Sannarlega hafa verið gerð afdrifarík mistök á fyrri stigum þessa máls og þjóðin hafnaði með enn meiri mun á síðasta ári fyrri tillögum ríkisstjórnarinnar sem boðaði alger boðaföll ef sú lausn næði ekki fram að ganga. Og allt það sem gerst hefur í millitíðinni hefur haldið áfram að grafa undan trausti í garð ríkisstjórnarinnar. (Gripið fram í: … formaður Sjálfstæðisflokksins …) Þannig er það bara.
Það var aldrei málflutningur okkar sjálfstæðismanna að næði samningurinn ekki fram að ganga færi allt á hliðina. Við lögðum á það hagsmunamat í meiri hluta þingflokks Sjálfstæðisflokksins að með langtímahagsmuni þjóðarinnar í huga væri best að ljúka málinu. Nú er niðurstaða fengin í það, niðurstaða sem við treystum þjóðinni til að eiga síðasta orðið um, ólíkt ríkisstjórnarflokkunum sem gerir vanda ríkisstjórnarinnar enn meiri en hann var þegar orðinn.
Það er mikill áfellisdómur yfir ríkisstjórninni, stjórnarflokkunum tveimur, þegar reynt er sérstaklega að halda málinu frá þjóðinni en það ratar þangað engu að síður og dómurinn er síðan sá sem við nú horfumst í augu við. Okkar verkefni er meðal annars það að fá Breta og Hollendinga til að skilja að þrotabú Landsbankans býr yfir eignum sem munu að öllum líkindum borga því sem næst alla upphæðina ef ekki alla upphæðina sem deilt er um. Gleymum því ekki að fyrir þá sem studdu samningana var þetta einmitt ein meginröksemdin. Það var ekki hægt á samningastigi málsins að fá Breta og Hollendinga til að horfast í augu við þetta en nú þegar þjóðaratkvæðagreiðslan er afstaðin hljótum við að nýta tækifærið og vekja athygli umheimsins og viðsemjenda okkar jafnframt á þessu. Ég hef fyrir mitt leyti engar áhyggjur af því að við getum ekki staðið saman sem eitt í hagsmunagæslu eftir svona skýr skilaboð frá þjóðinni um þetta mál en ég hef hins vegar ómældar áhyggjur af vantrausti í garð ríkisstjórnarinnar. Ég hef ómældar áhyggjur af því að þingið standi laskað eftir þessa þjóðaratkvæðagreiðslu og ég tel að sú stöðnun sem hér hefur ríkt í öllum málum, m.a. í skjóli óleystrar Icesave-deilu, sé að valda okkur slíkum skaða að við getum ekki lengur staðið aðgerðalaus á þingi. Það gengur einfaldlega ekki lengur að ekki verði látið reyna á traust þessarar ríkisstjórnar héðan úr þingsalnum.
Við vitum öll að úti í þjóðfélaginu ríkir ekki traust í garð ríkisstjórnarinnar. En hvernig er það í þingsalnum? Eru menn í dag tilbúnir til að horfast í augu við það að ríkisstjórnin stendur ekki undir væntingum þjóðarinnar í sínum verkum? Eru menn tilbúnir til að horfast í augu við það núna að Icesave-málið er ekki stóri vandinn sem þjóðin bíður eftir að verði leystur? Það eru vandamál sem snúa að heimilunum. Það er vandi atvinnulífsins í landinu. Það eru þjóðarhagsmunir okkar allra að atvinnulífið komist í gang og hér verði hafin ný sókn í átt til bættra lífskjara með verðmætasköpun og hagvexti. Það er forsenda þess að tekist geti raunhæfir samningar á vinnumarkaði að við komum Íslandi aftur í gang. Þeir sem horfa utan frá til Íslands sjá að tækifærin eru við hvert fótmál en við erum ekki að nýta þau. Meðan þau ganga okkur úr greipum ríkir stöðnun, ekki bara í lífskjörum fólksins í landinu heldur almenn stöðnun í öllum þjóðfélagsmálum. Nýjustu vendingar innan stjórnarflokkanna sýna að það er ekki nóg með að þeir séu innbyrðis ósammála um stór mál, eins og blasað hefur við okkur í utanríkismálum undanfarna daga, heldur sjáum við líka áframhald á innbyrðisátökum innan flokkanna.
Virðulegi forseti. Ríkisstjórnina skortir stuðning og ríkisstjórnina skortir traust fólksins í landinu. Hún forgangsraðar ekki í þágu Íslendinga, hana skortir framtíðarsýn og hana skortir skilning á því að í mannauði þjóðarinnar felast verðmætin. Þar eru verðmætin sem við þurfum að virkja. Það eru hagsmunir þjóðarinnar að boðað verði til kosninga sem fyrst. Það mun tryggja traust milli þings og þjóðar við lausn þess máls sem hér er á dagskrá en það mun ekki síður endurvekja traust á þessari mikilvægustu og valdamestu stofnun landsins. Þess vegna verðum við að ganga til kosninga.
Frú forseti. Ég mun leggja fram vantrauststillögu á ríkisstjórnina í dag.