139. löggjafarþing — 110. fundur,  12. apr. 2011.

niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar og framhald Icesave-málsins, munnleg skýrsla forsætisráðherra.

[14:33]
Horfa

Þór Saari (Hr):

Frú forseti. Það er mikið fagnaðarefni að almenningur hafi fengið að kjósa um svo mikilvægt mál sem Icesave 3 samningarnir eru. Vantraust almennings á stjórnvöldum, stjórnsýslu og stjórnarfari almennt er enn mikið og við þær aðstæður er mikilvægt að stjórnvöld sýni almenningi virðingu og traust og tali upp niðurstöðu kosninganna. Beint lýðræði með þjóðaratkvæðagreiðslum er það aðhald sem stjórnvöld þurfa á að halda og sú aðgerð forseta Íslands að vísa þessu mikilvæga máli til þjóðarinnar í annað sinn ber merki um kjark forseta og traust hans á skynsemi almennings.

Frú forseti. Hreyfingin hefur á öllum stigum Icesave-málsins barist gegn því að þessari byrði yrði velt yfir á almenning, enda ekki skuld sem fólkið í landinu stofnaði til. Alveg frá upphafi í því þverpólitíska starfi sem átti sér stað sumarið 2009 með Icesave 1 samningunum reyndum við að ná fram sem bestri niðurstöðu. Í minningunni er fyrsta heimsókn Lees Buchheits til Íslands sem kom hingað að frumkvæði hv. þm. Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur sem ekki er lengur treyst fyrir trúnaðarstörfum. Hann kom fyrir fjárlaganefnd og skilaboð hans voru skýr. Hann sagði: Þið eigið að láta þetta mál eiga sig og þið eigið ekki að elta neitt samkomulag við Breta og Hollendinga. Þeir munu sennilega heldur aldrei koma til með að stefna ykkur fyrir dómstóla. Á það var ekki hlustað og því fór sem fór.

Icesave 2 var svo kynnt um haustið 2009 og við nánari skoðun kom í ljós, eins og með alla þessa Icesave-samninga, að ekki var allt sem sýndist og samningurinn var óásættanlegur. Hann var á endanum keyrður í gegnum þingið af hálfu meiri hluta í miklu ósætti og eftir talsvert málþóf. Í upphafi árs 2010 ákvað forseti Íslands að synja þeim lögum staðfestingar og vísa þeim til þjóðarinnar. Þar reyndu formenn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna allt sem þau gátu til þess að gera þá atkvæðagreiðslu tortryggilega, fyrstu þjóðaratkvæðagreiðsluna frá lýðveldisstofnun. Tap þeirra var hins vegar hraksmánarlegt og vilji þjóðarinnar var skýr.

Í kjölfarið bjuggu menn sig svo undir hin sjö mögru ár sem forusta ríkisstjórnarinnar og allir helstu talsmenn hennar, atvinnulífsins, verkalýðshreyfingarinnar og háskólasamfélagsins höfðu hótað þjóðinni. En engin af þeim hörmungum sem dynja áttu yfir þjóðina með höfnun samningsins rættist og það sýndi sig að sá gegndarlausi hræðsluáróður sem rekinn var af hálfu ríkisstjórnarinnar og jábræðra hennar var algjörlega ómarktækur. Kúba norðursins var ekki annað en lýsing á huga og hugsun þeirra sem börðust fyrir samningnum, huga og hugsun sem er þröngsýn og sér aðeins eina leið, leið hótana og hræðsluáróðurs. Því miður endurtók sá málflutningur sig í aðdraganda nýafstaðinna kosninga enda fylgdi sami hugur máli.

Frú forseti. Í framhaldi niðurstöðunnar kröfðust Bretar og Hollendingar þess að það yrði þverpólitísk sátt allra flokka á Alþingi um samninganefnd ef reyna ætti að semja aftur. Innlegg Hreyfingarinnar í samningagerðina var að Bretar og Hollendingar ættu með réttu að fá sitt úr þrotabúi Landsbankans og ef eitthvað stæði eftir þegar skiptum yrði lokið ætti sú greiðsla að skiptast jafnt milli allra þriggja þjóðanna. Það mætti segja mér að það yrði niðurstaðan eftir nokkur ár þegar upp verður staðið.

Sú niðurstaða náðist hins vegar ekki. Mikið var hamrað á því að þetta væri samningur sem fulltrúi stjórnarandstöðunnar ætti þátt í að gera en litið var fram hjá því að það var endanleg niðurstaða sem skipti máli og niðurstaðan eftir ítarlega áhættugreiningu var einfaldlega ekki sú sem menn væntu.

Íslendingar fjölmenntu svo á kjörstað og 75% kosningarbærra manna tóku þátt í atkvæðagreiðslu um mjög flókið og leiðinlegt mál. Hafi einhver efast um áhuga og hæfi þjóðarinnar á því að taka þátt í ákvörðunum með þjóðaratkvæðagreiðslu er sá efi vonandi fyrir bí. Höfnun þjóðarinnar á Icesave-samningnum er ekki alvarlegt mál heldur góð niðurstaða og sú skoðun að já við Icesave hefði breytt miklu fyrir Ísland á alþjóðavettvangi er röng. Það sem gerðist hér á Íslandi með hruninu hafði þau áhrif á orðspor Íslands út á við að orðsporið verður á núlli næstu árin, ekki síst þegar haft er í huga að það var ríkisstjórnin, Alþingi, eftirlitsstofnanir og stór hluti stjórnsýslunnar á sínum tíma sem tók þátt í að spinna þann blekkinga- og lygavef um Ísland, bæði hér heima við og á alþjóðavettvangi, sem gerði hrunið enn verra og umfangsmeira en ella.

Það verður ekki fyrr en Íslendingum hefur tekist að gera upp hrunið af alvöru sem nágrannaþjóðirnar fara að taka mark á okkur aftur. Það uppgjör þarf að vera pólitískt, lagalegt, siðferðilegt — og persónulegt. Þó að margir hafi tekið sig til persónulega og endurhugsað framtíðina hefur einungis einn embættismaður hlotið dóm og einungis einn þingmaður sagt af sér. Meiri hluti Alþingis hafnaði svo ábyrgð stjórnmálanna í atkvæðagreiðslu þann 28. september sl. þar sem 23 þingmenn hrunstjórnarinnar, þar á meðal forseti Alþingis og forsætisráðherra, greiddu atkvæði um að vernda félaga sína úr hrunstjórninni. Sú atkvæðagreiðsla ein og sér sýnir að enn er langt í land. Með þessu fylgjast nágrannaþjóðirnar og alþjóðasamfélagið í gegnum sendiráð sín hér á landi og í þessu samhengi er Icesave-málið léttvægt.

Kosningabaráttan um Icesave 3 var kraftmikil, allóvægin á köflum en líka ógagnsæ og að óbreyttu óar mann við umhverfi ESB-kosninganna þegar þar að kemur. Þetta er ferli sem þarf að laga. Í frumvarpi Hreyfingarinnar um þjóðaratkvæðagreiðslur er gert ráð fyrir svokallaðri Lýðræðisstofu sem m.a. hefur það hlutverk að búa mál til þjóðaratkvæðagreiðslu með viðeigandi kynningum o.fl. og tryggja gagnsæi kosningabaráttunnar eftir því sem hægt er, sérstaklega með tilliti til fjármögnunar. Hreyfingin hefur nú lagt þetta frumvarp fram þrisvar sinnum en ríkisstjórnarflokkarnir hafa ekki stutt það nema með undantekningum þrátt fyrir öll kosningaloforðin um lýðræðisumbætur. Vonandi mun Alþingi og allsherjarnefnd taka við sér strax í þessari viku og koma hreyfingu á þetta mikilvæga mál.

Frú forseti. Þjóðaratkvæðagreiðslur eru mikilvæg leið til að veita stjórnvöldum hverju sinni aðhald og eru ekki síst mikilvægar þegar stjórnvöld hafa illa misfarið með vald sitt. Endurskoðun stjórnarskrárinnar mun vonandi gera þjóðaratkvæðagreiðslur að eðlilegum viðburði og aðferð til ákvarðanatöku hér á landi í framtíðinni og vonandi tekst okkur að búa til umgjörð um slíkt ferli þannig að sómi sé að.

Frú forseti. Það er kominn tími til að byggja upp að nýju traust á milli Alþingis og þjóðarinnar og fyrsta skrefið í því ferli á að sjálfsögðu að vera að Alþingi og stjórnmálamennirnir treysti þjóðinni betur til ákvarðanatöku en verið hefur hingað til. (Forseti hringir.) Málalyktir umdeildra mála með þjóðaratkvæðagreiðslum eru besta leiðin til þess.