139. löggjafarþing — 110. fundur,  12. apr. 2011.

nálgunarbann og brottvísun af heimili.

706. mál
[18:29]
Horfa

innanríkisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Það lagaákvæði sem hv. þingmaður vísar til er ekki að finna í þessum lögum að sönnu, þar sem sá sem gerist brotlegur er dæmdur til meðferðar, en sú hugsun er að ryðja sér til rúms í lagaumhverfinu í Evrópu hvað varðar ýmis gróf ofbeldisbrot, ekki síst kynferðisofbeldi gegn börnum. Ég vísa t.d. í sáttmála Evrópuráðsins eða samþykktir Evrópuráðsins þar að lútandi sem réttarfarsnefnd er að skoða og fara yfir lagaumhverfið og reglugerðarverkið á meginlandi Evrópu, og einkum á Norðurlöndum, hvað þetta snertir sérstaklega, þ.e. að hvaða marki við eigum að dæma ofbeldismenn til einhvers konar meðferðar. Hvað þetta tiltekna frumvarp áhrærir er ekki að finna slíkt ákvæði en ég tek undir með hv. þingmanni að þetta er hugsun sem er að ryðja sér til rúms í réttarfarskerfinu almennt og það er nokkuð sem við hljótum að horfa til.