verslun með áfengi og tóbak.
Frú forseti. Ég held að þetta beinist náttúrlega að stofnuninni. Þetta er til þess að ganga frá því skýrt í lögum að stofnunin sé ekki sjálfráð um það að reka aðra stefnu en stjórnvöld hvers tíma. Sem betur fer er það þannig að að því að móta stefnu í lýðheilsumálum, forvarnamálum og öðru slíku, koma mörg stjórnvöld. Að sjálfsögðu er það ekki fjármálaráðuneytið sem í grunninn fer með þær áherslur heldur er það eingöngu handhafi eignarhaldsins á þessu fyrirtæki. Það eru heilbrigðisyfirvöld og velferðaryfirvöld sem leggja þar meira af mörkum, jafnvel menntamálayfirvöld. Þetta vísar bara til þess að þessari opinberu stofnun ber að starfa samkvæmt opinberri mótaðri stefnu á þessu sviði hverju sinni og ég held að það sé bara eins og við hljótum að vilja hafa það. Það er hnykkt á þessum markmiðum með þessum lagabreytingum og undirstrikuð hin samfélagslega ábyrgð sem er í því fólgin að fara með það vandasama hlutverk sem þessi stofnun fer með.