139. löggjafarþing — 110. fundur,  12. apr. 2011.

verndar- og nýtingaráætlun vegna virkjunar fallvatna og jarðhita.

77. mál
[23:03]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka fyrir svarið en ég vil þó skerpa á spurningu minni því að ég var að tala um 1. mgr. Ég er mjög sátt við 3. mgr. 3. gr. og tel að þau svæði sem þegar hafa verið friðlýst eigi að vera það áfram. Svo eru auðvitað, eins og hv. þingmaður kom inn á, friðlýsingarskilmálarnir mismunandi og sums staðar gert ráð fyrir að hægt sé að fara í virkjunarframkvæmdir og þá fellur það undir rammaáætlun.

En ég velti fyrir mér 1. mgr. Ég get ekki lesið annað út úr henni en að erfitt sé að sjá hver eigi að hafa forræðið og mér finnst einkennilegt að iðnaðarráðherra leggi fram áætlun um vernd á svæðum þar sem eru virkjanlegar orkuauðlindir vegna fallvatna og háhita en ekki umhverfisráðherra sem leggi þá sjálfstætt mat á hvað af þessum svæðum eigi að vernda. Nú kann að vera að það sé einhver praktísk ástæða fyrir því en mér finnst nýtingarþættinum gert hærra undir höfði en verndarþættinum í ljósi þess að það er ráðherra iðnaðarmála sem á að leggja fram áætlunina.