139. löggjafarþing — 110. fundur,  12. apr. 2011.

framleiðsla, verðlagning og sala á búvörum.

13. mál
[23:07]
Horfa

Frsm. sjútv.- og landbn. (Björn Valur Gíslason) (Vg):

Forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. 1. flutningsmaður frumvarpsins er hv. þm. Einar K. Guðfinnsson og meðflutningsmenn hans hv. þm. Kristján Þór Júlíusson, Pétur H. Blöndal, Gunnar Bragi Sveinsson, Sigurður Ingi Jóhannsson, Ásbjörn Óttarsson og Jón Gunnarsson.

Með frumvarpinu er stefnt að því að fella brott 19., 22., 24., 26. og 27. gr. búvörulaga. Samkvæmt 19. gr. laganna skal innheimta verðmiðlunargjald á heildsölustigi af afurðum nautgripa og sauðfjár auk þess sem kveðið er á um tiltekna ráðstöfun tekna af gjaldtökunni. Í 22. gr. laganna er kveðið á um innheimtu verðtilfærslugjalds af hverjum innvegnum mjólkurlítra í afurðastöðvum innan greiðslumarks. Umsjón og framkvæmd gjaldheimtunnar er ákvörðuð í 24. gr. laganna og í 27. gr. koma fram heimildir til innheimtu gjaldanna auk þess sem ráðherra er veitt heimild til setningar reglugerða um nánari útfærslu innheimtunnar, framkvæmd uppgjörs, tímabil, gjalddaga, álagningu samkvæmt áætlun og fleira.

Í athugasemdum við frumvarpið kemur fram að megintilgangur þess sé að draga úr millifærslukerfi í landbúnaði og gera verðlagningu gagnsærri. Þá megi ætla að með því móti verði skilyrði fyrir samkeppni bætt og innlendum mjólkurafurðastöðvum gert betur kleift að takast á við samkeppni frá útlöndum. Að auki muni skilgreindur opinber stuðningur við landbúnað lækka um allt að 400 millj. kr.

Flestir umsagnaraðila hafa fagnað framlagningu frumvarpa þessa efnis, hvatt til samþykktar eða ekki gert sérstakar athugasemdir við efni þeirra. Þó hafa Neytendasamtökin, Samkeppniseftirlitið, Alþýðusamband Íslands og Mjólka ekki talið gengið nægilega langt í því að örva samkeppni á framleiðslu- og heildsölumarkaði landbúnaðarvara með breytingum á búvörulögum. Hafa framangreindir aðilar m.a. bent á nauðsyn þess að afnema 13., 52. og 71. gr. laganna.

Fyrir nefndina komu fjölmargir umsagnaraðilar og nefndinni bárust allmargar umsagnir sem teknar voru til umfjöllunar og allnokkur umræða varð um í nefndinni. Nefndin tekur undir að í rauninni sé opinber verðmiðlun og verðtilfærsla að miklu leyti orðin óþörf tæki og að tímabært sé að fella heimildir þeirra brott úr lögum. Þá benti nefndin á nauðsyn þess að þáttur samkeppni, framleiðslu og sölu á búvörum sé efldur á sanngjarnan hátt þannig að ekki verði raskað því jafnvægi og sátt sem ríkt hefur á búvörumarkaði. Ber að taka tillit til þess að búvörumarkaðurinn byggist á áratugaframkvæmd og samningum sem stjórnvöld gera til tiltölulega langs tíma. Hvorki framleiðendur né neytendur njóta góðs af því að grundvöllur hans sé brotinn upp á einni nóttu og eðlilegt sé að breytingar verði í eðlilegu samhengi við framþróun og samsetningu samfélagsins og markaða. Af þeim sökum er það álit nefndarinnar að breytingar verði að eiga sér stað skref fyrir skref. Nefndin vekur athygli á því að umsagnaraðilar sem athugasemdir hafa gert við málið hafa ekki í raun haft nokkurt efnislegt við það að athuga heldur aðeins gagnrýnt að ekki skyldi gengið lengra. Þá tekur nefndin undir að þörf sé á að gæta þess að ganga ekki of langt í að skerða möguleika til markaðssetningar á landbúnaðarafurðum og leggur því til breytingar því til samræmis.

Í ljósi framangreinds leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingum.

1. gr. orðist svo:

19. gr., 22. gr., 1.–3. mgr. 24. gr. og 26. gr. falli brott.

Undir nefndarálitið rita hv. þm. Lilja Rafney Magnúsdóttir, formaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar, hv. þingmenn Björn Valur Gíslason, Atli Gíslason, Einar K. Guðfinnsson, Sigurður Ingi Jóhannsson og Jón Gunnarsson.

Hv. þingmenn Ólína Þorvarðardóttir, Helgi Hjörvar og Róbert Marshall voru fjarverandi við afgreiðslu þessa máls.