vestnorrænt samstarf til að bæta aðstæður einstæðra foreldra á Vestur-Norðurlöndum.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að leggja fram þessa þingsályktunartillögu þó ég hafi ákveðnar efasemdir um hana og mun ég spyrja nokkurra spurninga út af því.
Hér er fjallað um að skiptast á hugmyndum, þekkingu og reynslu. Nýlega kom út skýrsla um konur og velferð í Færeyjum, Íslandi og Grænlandi þar sem m.a. var fjallað um aðstæður einstæðra foreldra. Í greinargerð með tillögunni er staðan í Færeyjum sérstaklega rakin og talað um hlutfallslega fátækt hluta þeirra barna sem búa hjá einstæðum mæðrum. Ég er sannfærð um að sama tilhneiging eigi við á Grænlandi og Íslandi og örugglega alls staðar hjá einstæðum foreldrum, sérstaklega einstæðum mæðrum.
Ég velti því fyrir mér hvort eitthvað sérstakt einkenni Ísland, Grænland og Færeyjar í þessum efnum. Er þar eitthvert öðruvísi mynstur en t.d. almennt á Norðurlöndunum eða í Evrópu sem er líklegt til að leiða til að þessi athugun verði jákvæðari fyrir aðgerðir í þágu einstæðra foreldra en víðtækara samstarf og víðtækari athugun? Til dæmis er hér sagt að einstæðar mæður í Færeyjum fari burt og þá veltir maður fyrir sér hvert þær fari. Væntanlega fara þær margar til Danmerkur. Er þá eitthvað þar sem við ættum að líta til? Þarf ekki að víkka sjónarhornið? Eru aðstæður mismunandi (Forseti hringir.) á Grænlandi, Íslandi og Færeyjum en samt sérstakar þannig að við eigum að líta sérstaklega hver til annars?