vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.
Frú forseti. Á fundi þingflokks Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs 21. mars sl. skýrðum við hv. þm. Lilja Mósesdóttir frá þeirri ákvörðun okkar að segja skilið við þingflokk VG. Við teljum og töldum að forusta VG hefði orðið viðskila við kosningaloforð sín og grundvallarstefnu í veigamiklum atriðum. Við tíndum þar til ýmis atriði til stuðnings þessari ákvörðun okkar, efnahagsstefnuna sem byggir á áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í ríkisfjármálum fyrir árin 2009–2013 sem var gerð í tíð fyrri ríkisstjórna. Afgreiðslu fjárlaga gagnrýndum við þar sem samfélagsleg áhætta var hunsuð. Tillögu um breytta forgangsröðun og fjárframlög til að koma í veg fyrir aukið atvinnuleysi og fleira var hafnað. Nú hefur það komið í ljós sem við vöruðum við, fjárlög þessa árs hafa nú þegar leitt til uppsagna fjölda kvenna, einkum á landsbyggðinni. Konur hafa borið þungann af hagræðingu síðustu fjárlaga. Sú staðreynd blasir við að á síðustu tveimur árum hefur 540 starfsmönnum ríkisins verið sagt upp. Þar var mikill meiri hluti, 87%, konur og það voru 300 störf á landsbyggðinni. Maður spurði sjálfan sig: Hvar er hin kynjaða hagstjórn? Hvar er jafnréttið og hvar er búsetujafnræðið sem ég hef borið mjög verulega fyrir brjósti?
Ég get nefnt fleira. Áður en VG fór í ríkisstjórn var flokkurinn einarður andstæðingur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, enda stríðir stefna sjóðsins gegn uppbyggingu velferðarsamfélagsins eins og mörg dæmi sanna. Nú er forusta VG og Samfylkingin orðin að eins konar málsvara fyrir Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
Icesave er auðvitað ein samfelld sorgarsaga. Ég ætla ekki að eyða miklu púðri í það en vísa til ræðu minnar um skýrslu forsætisráðherra frá því í gær. Að ESB-umsókninni kem ég síðar.
Þvert á ítrekaðar samþykktir flokksráðs og þingflokks VG, og reyndar samstarfsyfirlýsingu flokkanna, var ekkert aðhafst til að koma í veg fyrir áframhaldandi einkavæðingu HS Orku. Ríkisstjórnin hafði það í hendi sér að koma í veg fyrir þá alvarlegu þróun og gat m.a. gengið inn í kaup Magma á HS Orku á sínum tíma. Slíkt var ekki gert þótt ríkisstjórnin væri í dauðafæri trekk í trekk. Á sama tíma kaus ríkisstjórnin hins vegar að forgangsraða þannig að leggja 11,5 milljarða í Sjóvá – Almennar og veita bönkunum verulega fyrirgreiðslu á grundvelli víkjandi lána.
Við nefndum líka skuldavanda heimilanna og tregðu við að koma til móts við einstaklinga og heimili sem hefur tafið endurreisn efnahagslífsins. Við nefndum líka menningu og málfrelsi sem ég hef verið mjög upptekinn af, sérstaklega eftir vinnu í þingmannanefndinni. Núverandi ríkisstjórn hafði umboð þjóðarinnar til að efla jöfnuð og lýðræði í landinu. Sú tilfinning sem við sitjum upp með er að ekkert hafði breyst, framkvæmdarvaldið hefur ofurvald yfir löggjafarvaldinu, enn er foringjaræði í gangi og þar fram eftir götunum.
Auðvitað eru þetta stór mál en það ræður ekki ákvörðuninni. Það sem ræður afstöðu minni til þessarar vantrauststillögu er eindregin og þrotlaus andstaða mín gegn ESB-umsókninni og ESB-aðild. Ég sagði það og hef sagt það að Icesave-samningurinn sé skilgetið afkvæmi ESB-umsóknarinnar. Niðurstaða Icesave-kosninganna er því að mínum dómi skýrt vantraust þjóðarinnar á stefnu ríkisstjórnarinnar í þeim málum, þ.e. á stefnuna í ESB-umsókninni. Þetta staðfesta enn fremur skoðanakannanir. Ég segi að ríkisstjórnin þurfi endurnýjað umboð kjósenda í þessu máli sem varðar, eins og hér hefur komið fram, sjálfstæði og fullveldi þjóðarinnar. Því er tímabundið líf ríkisstjórnar hjóm eitt miðað við það að við stöndum í sjálfstæðis- og fullveldisbaráttu.
Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar var okkur þingmönnum Vinstri grænna áskilinn fullur og óskoraður réttur til málfrelsis hvar og hvenær sem er. Nú hefur það gerst að mikill meiri hluti mála sem kemur á borð ríkisstjórnarinnar og Alþingis varðar ESB-umsóknina beint og óbeint. Það er alveg ljóst að ESB mun aldrei samþykkja kröfur okkar. Þingmönnum VG var lofað að grundvallarhagsmunum okkar yrði flaggað, m.a. varðandi auðlindirnar og fiskinn. Hvað heitir það í ríkisstjórn? Að umtalsverður afsláttur hafi verið gefinn. Nú heitir það (Forseti hringir.) tilmæli. Kröfur, forsendur og markmið okkar heita tilmæli ríkisstjórnarinnar til ESB. (Forseti hringir.) Það gengur ekki. Hér stend ég og get ekki annað en sagt já vegna ESB-málsins.