vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.
Virðulegi forseti. Það kom þeirri sem hér stendur á óvart að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins bæri fram vantrauststillögu á ríkisstjórnina núna, á þessum tímapunkti, strax að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu. Kannski hefði það ekki komið mér á óvart ef meiri hluti þingflokksins hefði ekki verið sammála stjórnarflokkunum í málinu sem greidd voru atkvæði um og þjóðin því jafnósammála þingflokki sjálfstæðismanna og þingflokkum stjórnarflokkanna.
Kínverskt spakmæli segir: Á gleðistundum á maður ekki að gefa loforð og á stundum reiðinnar á maður ekki að svara bréfum. Ef til vill hefði þingflokkur og forusta Sjálfstæðisflokksins átt að íhuga gildi þessa áður en ákvörðun um vantrauststillögu var tekin. En ekki er ástæða til að staldra lengi við hugleiðingar um af hverju tillagan var sett fram, heldur nýta tækifærið til að vekja athygli á því hvað ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur, ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna, hefur afrekað á aðeins tveimur árum við fordæmalausar aðstæður.
Vorið 2009 veitti meiri hluti kjósenda jafnaðarmönnum og félagshyggjufólki skýrt umboð til að glíma við efnahagserfiðleikana eftir hrun og skapa jarðveg fyrir norrænt velferðarsamfélag þar sem almannahagsmunir eru teknir fram yfir sérhagsmuni ásamt því að endurreisa traust á íslensku samfélagi og orðspori Íslands á alþjóðavettvangi. Verkin hafa verið krefjandi en að sama skapi hefur verið gefandi að sjá árangur þeirra. Hrun fjármálakerfisins og efnhagssamdrátturinn sem fylgdi í kjölfarið hefur valdið algjörum umskiptum í fjármálum ríkisins.
Við hrunið komu veikleikar ríkisfjármálanna í ljós til viðbótar öllum þeim miklu skakkaföllum sem það olli ríkissjóði. Samspil hefur verið eftir hrun í stefnu í peningamálum og ríkisfjármálum. Þessir tveir armar hagstjórnarinnar toga nú ekki hvor í sína áttina eins og gerðist hér á þenslutímum fyrir hrun. Við höfum lært af biturri reynslu að slæm stjórn ríkisfjármála og peningamála frá ári til árs hefur langvinn áhrif á efnahagsmálin til hins verra.
Ástæða er til að gleðjast yfir árangri ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur sem náðst hefur með styrkri stjórn og stefnu í ríkisfjármálum. Um hana vitna tölulegar staðreyndir og umsagnir innlendra og erlendra sérfræðinga. Við höfum fundið leið til að skera niður í ríkisrekstri þannig að þeir sem þurfa mest á þjónustu ríkisstofnana að halda hafa borið minnstar byrðar kreppunnar. Við höfum farið í niðurskurð sem öllum var ljóst að fara þyrfti í til að minnka það bil sem myndast hafði á milli tekna og gjalda ríkisins. Einnig tókst að finna leiðir til tekjuöflunar þannig að þeir sem mest hafa handa á milli gefa af tekjum sínum meira en þeir sem minna hafa. Stefnan hefur í stuttu máli verið sú að stöðva hallarekstur og skuldasöfnun þannig að starfsemi ríkisins verði sjálfbær. Stefnan er mörkuð út frá þeim félagslegu sjónarmiðum sem stjórnarsamstarf Samfylkingar og Vinstri grænna byggir á og henni hefur verið fylgt fast eftir. Ef ekki verður skipt um stefnu með annarri ríkisstjórn verður að nokkrum árum liðnum unnt að verja rekstrarafgangi til þess að grynnka jafnt og þétt á skuldunum sem ríkissjóður hefur þurft að taka á sig vegna efnahagshrunsins. Þá mun hagur okkar vaxa og aðstæður batna til að efla þjónustu og bæta skilyrði samfélagsins til aukinnar velferðar.
Áætlun vinstri stjórnarinnar um endurreisn eftir hrun er raunsæ og hófstillt. Hún byggir á því að ná traustum grunni og stöðugleika þannig að efnahagslífið geti tekið að vaxa á þeim grundvelli. Mjög góður árangur hefur náðst á undanförnum tveimur árum þar sem viðskiptahalli hefur snúist í afgang, verðbólga hjaðnað umtalsvert, stýrivextir lækkað jafnt og þétt, atvinnuleysi er minna en spáð var og gengi krónunnar hefur styrkst.
Öllum er ljóst að til þess að vinna á of miklu atvinnuleysi og því böli sem því fylgir þurfum við að skapa aðstæður fyrir hagvöxt. Hagvöxtur er sem betur fer þegar hafinn en hann þarf að örva enn meira svo ásættanlegur árangur náist. Um þetta er ekki ágreiningur. Hagvöxtur bætir kjör og því eigum við að styðja þau verkefni sem líklegust eru til lengri tíma til að auka hagvöxtinn. Hlutverk hagstjórnar er að hámarka velferð íbúa landsins. Í því felst m.a. að stuðla að eins miklum hagvexti og vöxtur framleiðslugetu þjóðarbúsins leyfir, að hagvöxtur og vöxtur atvinnu verði eins mikill og kostur er án þess að efnahagslegt jafnvægi raskist.
Virðulegi forseti. Við erum hálfnuð með kjörtímabilið. Við erum komin vel á veg og tiltektin komin á það stig að mögulegt er að sjá til lands og setja saman enn traustari áætlanir út kjörtímabilið. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur var ekki bara mynduð til þess að koma skikki á mestu óreiðuna eftir hrun svo þeir sem skópu hana gætu tekið aftur við stjórnartaumunum. Það var ekki það sem kjósendur báðu um vorið 2009. Ríkisstjórnin var mynduð fyrst og fremst til þess að hún væri að tiltekt lokinni í aðstöðu til að mynda hér betra samfélag á grundvelli jöfnuðar og réttlætis.
Í íslensku samfélagi hefur ríkt tortryggni og fjandskapur nærst frá falli bankanna. Heift og reiði hefur því miður blindað mörgum sýn og komið í veg fyrir að þeir sjái í réttu ljósi hvað áunnist hefur og við hverju má búast í framtíðinni. Málum hefur verið haldið í átakaferli, og vanlíðan þjóðarsálarinnar ekki náð að hverfa á tveimur árum. Á því má eflaust finna margar skýringar. En vantrauststillaga Sjálfstæðisflokksins nú á ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur er ekki lausnin sem kallað er eftir. Næði hún fram að ganga væri þar með búið að leiða þjóðina út í enn ein átökin þegar mikilvægast er að finna leið til sátta.
Það er vond upplifun að fylgjast með Sjálfstæðisflokknum standa nú á hliðarlínunni og kasta grjóti inn á völlinn þar sem heiðarlega er barist fyrir bættum hag þjóðarinnar. Sjálfstæðisflokknum mun ekki með þessu takast að skapa sér nýja og betri fortíð. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur er með sínum góðu verkum að búa svo í haginn að búsetuskilyrði á Íslandi batni enn frekar og við getum öll horft vongóð til framtíðar. Það verður ekki gert með því að smella fingri eða með töfrabrögðum, heldur með mikilli og heiðarlegri vinnu í þágu almennings. Þessi ríkisstjórn mun hvorki velta vandanum yfir á þá verst settu í samfélaginu né skjóta vandanum á frest þó að aðgerðir þær sem nauðsynlegt er að fara í séu ekki til vinsælda fallnar um stund. Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna mun ná því markmiði sínu að hagvöxtur verði orðinn viðunandi, verðbólga lág, gengi stöðugt og að atvinnuleysi hafi dregist verulega saman við lok kjörtímabilsins.