vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.
Virðulegi forseti. Hér ræðum við vantrauststillögu á ríkisstjórn, ríkisstjórn sem tók svo sem ekki við beisnu búi eins og farið hefur verið yfir í ræðum þeirra sem hafa talað á undan mér. Það er auðvelt að tala mikið um verkleysi og gagnrýna án þess að leggja fram neinar beinar tillögur til uppbyggingar eða breytinga. Það er í sjálfu sér auðveldasta stjórnarandstaða sem hægt er að takast á hendur. Ég held að við megum ekki vanmeta það sem hefur verið gert og hér hefur verið farið yfir þann mikla og gríðarlega árangur sem hefur náðst hvað varðar það að koma lagi á efnahagsmál, sérstaklega í ljósi þess að við öll hér inni munum mætavel hvernig okkur leið þegar samfélagið hrundi á nokkrum dögum haustið 2008. Við munum mætavel að ekki aðeins leit allt út fyrir að vera svart í efnahagsmálum þjóðarinnar, ekki aðeins reiknaði fólk með því að vera jafnvel að keyra á síðasta bensíntankinum sínum þessa örlagaríku daga í október, við munum líka eftir því siðferðilega og móralska hruni sem varð sem við höfum svo unnið að og höfum svo gert upp, m.a. í rannsóknarskýrslu Alþingis og í skýrslu þingmannanefndarinnar, rannsóknarskýrslu sem ég tel að mörgu leyti einstakt plagg og eitthvað sem hefur auðvitað vakið athygli langt út fyrir landsteinana, að reyna að takast á við fortíðina og gera hana upp. Við getum alltaf deilt um hvort nægilega hafi verið að gert en ég held að það sé mikilvægt að hlusta á þá sem segja okkur núna að horfa til framtíðar.
Hér hefur verið vitnað í hagfræðing Danske Bank, Lars Christensen, sem hélt erindi hér á landi í gær og sagði: „Horfið fram á veginn, hlutirnir líta ekki eins illa út og þið haldið, og nú skiptir miklu máli að taka sig út úr hinni andlegu kreppu.“ Það var reyndar ekkert hlustað á hann síðast þegar hann kom hingað til lands og spáði fyrir hruninu og honum jafnvel sagt að sækja sér endurmenntun af forsvarsmönnum Sjálfstæðisflokksins, sem kannski þyrftu ekki síður á þeirri endurmenntun að halda miðað við þann málflutning sem hér hefur verið uppi í dag.
Við verðum að líta til þess að nú eftir tvö ár í starfi þessarar ríkisstjórnar hefur auðvitað náðst mikill árangur. Hæstv. fjármálaráðherra fór hér yfir hin efnahagslegu mál, um jöfnuð í ríkisfjármálum. Hæstv. forsætisráðherra nefndi ýmis önnur mál sem hefur verið unnið að, ýmsar réttarbætur. Við erum á þeim tímamótum að horfa fram á veginn og sjá ákveðna uppbyggingu hefjast. Á hvaða forsendum verður sú uppbygging? Á hún að vera á þeim sömu forsendum og leiddu okkur út í hrunið? Það er stóra pólitíska spurningin sem við ræðum í dag. Á hvaða forsendum ætlum við að leggja grunn þeirrar uppbyggingar sem ég vona svo sannarlega að við deilum að við viljum sjá hér á landi.
Ég hef fulla trú á því að við getum byggt upp samfélag á grunni menntunar, þekkingar, vísinda, skapandi greina, breyttrar atvinnustefnu frá því sem áður var þar sem hugað var að stórum, stórkarlalegum, fáum lausnum í atvinnumálum, eins og mér hefur því miður fundist stundum brenna við þegar atvinnumál eru rædd í þessum sal. Horfum til þess hverju okkar menntakerfi og okkar samfélagslegu stoðir hafa skilað okkur. Bara í þessari viku var undirritaður samningur um uppbyggingu ofurtölvumiðstöðvar á Íslandi. Það er fjárfesting fyrir 200 millj. kr. Við erum svo önnum kafin við að rækta bölsýnina að við lítum ekki einu sinni til þeirra tækifæra sem þetta getur gefið okkur, ekki bara íslenskum vísindamönnum heldur líka í afleiddum störfum og orðspori ef vel tekst til.
Horfum einmitt á þessi smáu verkefni sem saman mynda stóra heild. Horfum ekki alltaf á þessar einhæfu stórkarlalausnir þegar við tölum um atvinnusköpun. Á þessu byggir líka sú stefnumörkun sem lögð hefur verið fram undir orðinu „sóknaráætlun“ sem einmitt byggir á þremur gildum, þekkingu, sjálfbærni og velferð. Ég held að við höfum notað tímann vel og vissulega, ef við í raun og veru horfum til þess hvert stefndi hér haustið 2008 og hvað gerðist, held ég að við séum á góðri leið með að byggja okkur upp eftir það, þ.e. ná þeim jöfnuði sem þurfti að ná til þess að geta svo stefnt til framtíðar.
Ég hef litla trú á því að vantraust á ríkisstjórnina, þingrof, verði til þess að byggja upp trú og von eins og hv. þingmaður og formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, sagði í ræðu sinni, að það þyrfti að byggja upp trú og von, hann gleymdi kærleikanum. Ég er alveg sammála honum að við þurfum trú, von og kærleika en ég held ekki að þingrof og kosningar á þessum tímapunkti sé rétta aðferðin til þess. Nú eigum við að líta á það sem sameinar okkur, fremur að líta til þess að koma á ákveðnum stöðugleika, fremur að horfa til þess að reyna að ná enn meiri árangri en þegar hefur náðst. Ég held að það getum við mætavel gert, ekki bara sú ríkisstjórn sem hér er til umræðu heldur við öll í þinginu því að virðingu þingsins, sem fólki hefur líka orðið tíðrætt um hér og er auðvitað eitthvað sem við ættum að hafa áhyggjur af, byggjum við auðvitað ekki upp nema saman og við gerum það ekki með karpi héðan í pontu.