vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.
Virðulegi forseti. Við ræðum hér tillögu um vantraust borna fram af þingflokki sjálfstæðismanna. Það að ekki séu aðrir flokkar á tillögunni veikir hana um leið og það segir ekkert til um afstöðu annarra flokka eða þingmanna til vantrausts á sitjandi ríkisstjórn. Tímasetning tillögunnar ber að mínu viti vott um ráðaleysi vegna erfiðleika innan Sjálfstæðisflokksins og tímasetningin er röng að mínu viti. Allar líkur eru á því að ríkisstjórnin standi af sér tillöguna og þá verður Sjálfstæðisflokknum þakkað fyrir að framlengja líf hennar.
Herra forseti. Ræða hæstv. forsætisráðherra var ræða þess sem ekki er í sambandi við fólkið í landinu. Forsætisráðherra hlustar augljóslega ekki á þær þúsundir sem farið hafa af landi brott, eru að missa heimili sín eða eru atvinnulausar. Forsætisráðherra í slíkri stöðu þarf að víkja.
Hver man ekki eftir dómsdagsspám ríkisstjórnarinnar varðandi Icesave? Þjóðin hafði vit fyrir ríkisstjórninni og nú þarf þjóðin að fylgja því eftir. Ríkisstjórnin er löngu komin á endastöð og í raun ljóst að hún átti aldrei að leggja upp í þá ferð sem hafin var, enda hluti meintra stuðningsmanna hennar í raun með fyrirvara við samstarfið. Vinstri hreyfingin – grænt framboð, nokkrir þingmenn hennar voru með fyrirvara vegna aðildarumsóknar að Evrópusambandinu. Þessir fyrirvarar við samstarfið hafa reynst erfiðir fyrir margan þingmanninn því að forustumenn Vinstri grænna hafa hlaupið frá sínum helstu kosningaloforðum til þess eins að tryggja sér sæti í ríkisstjórn, líklega verstu ríkisstjórn allra tíma.
Hæstv. forsætisráðherra nefndi áðan ævintýrið um litlu gulu hænuna. Mér þótti það ósmekklegt af hæstv. forsætisráðherra að draga þetta fallega ævintýri inn í þessa ræðu. Ég vil hvetja hæstv. ráðherra til að kynna sér ævintýrið um drenginn sem hrópaði úlfur, úlfur. Forsætisráðherra og þingmenn stjórnarliðsins hafa kallað hér úlfur, úlfur, hvað eftir annað út af Icesave og öðrum málum. Ég hvet þá til að kynna sér þetta ævintýri.
Virðulegi forseti. Samfylkingin er einsmálsflokkur og því má ekkert spilla vegferðinni til Evrópusambandsins. Meðan eldar loga í samfélaginu er byrgt fyrir glugga Stjórnarráðsins með bláum stjörnuprýddum fána þeirra sem kúguðu okkur í Icesave-málinu. Ætla þingmenn Vinstri grænna að halda áfram Evrópugöngunni þvert á gefin loforð?
Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur er ríkisstjórn glataðra tækifæra. Vonbrigðin eru mikil því að ekki hefur tekist að nýta þau tækifæri sem nánast eru um allt samfélagið. Ríkisstjórnin hefur rekið þá stefnu að huga fyrst og fremst að fjármagnseigendum og að halda friðinn við hið svokallaða alþjóðasamfélag. Trúverðugleikann vantar í þessa ríkisstjórn. Ríkisstjórn sem gerir skattkerfið óskiljanlegt og hótar aukinni skattheimtu hrekur frá sér þá sem vilja leggja lóð á vogarskálarnar til að koma atvinnulífinu af stað. Forsenda velferðar er atvinna, forsenda atvinnutækifæra er lífvænleg umgjörð. Íslendingar bjuggu við það þegar hrunið varð að hér var búið að byggja upp gríðarlega öflugt velferðarkerfi. Velferðarkerfið óx ekki og varð ekki til nema fyrir þá staðreynd að hér var öflugt atvinnulíf sem skilaði tekjum í ríkiskassann.
„Vinna, vöxtur, velferð“ var eitt sinn slagorð Framsóknarflokksins, herra forseti. Það slagorð er líklega einfaldasta og skýrasta hagfræðikenning sem sett hefur verið fram. Því miður hefur núverandi ríkisstjórn ekki skilið þá kenningu.
Ísland á bjarta framtíð fram undan ef við höldum vel á okkar málum. Við eigum sjávarútvegsauðlindina sem er enn okkar helsta atvinnugrein. Sjávarútvegurinn getur enn þá og áfram orðið undirstaða velferðarinnar ef við gætum þess að umgjörð greinarinnar sé traust og afgjald til samfélagsins sanngjarnt. Við megum ekki á nokkurn hátt glata forræði hennar.
Við eigum íslenskan landbúnað sem er einstakur og þar verðum við að gæta að sérstöðu og fæðuöryggi landsins. Við megum ekki búa þannig um hnútana að við þurfum að reiða okkur á innflutning á matvælum þegar skortur er á þeim víða um heim.
Við eigum íslenska vatnið sem við nýtum til orkuframleiðslu og neyslu. Vatn er gríðarleg auðlind sem okkur ber að nýta á skynsamlegan hátt og í sátt við umhverfið. Við verðum að hafa framtíðarsýn í orkunýtingu sem er trúverðug fyrir þá sem hafa fjármagn og getu til að borga fyrir aðgang að þeirri auðlind. Vatn til drykkjar skortir víða og þar eru miklir möguleikar.
Við eigum gríðaröflugan iðnað stóran og smáan þar sem tækni og þekking fær að njóta sín.
Síðast en ekki síst vil ég nefna íslenskan mannauð sem er afar eftirsóttur. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hefur mistekist að hlúa að þessum mannauði. Þess vegna hafa aldrei fleiri flust frá landinu, flust frá Íslandi, því að mannauður þeirra er ekki metinn að verðleikum. Tækifærin verða að vera til staðar fyrir þetta fólk, þau eru það ekki í dag og á því þarf ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur að axla ábyrgð.
Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hefur brugðist hinum vinnandi stéttum því að óvissan um atvinnu þeirra hefur sjaldan verið meiri. Það er óvissa á vinnumarkaði, óvissa um rekstur þjóðarbúsins, óvissa um sjávarútveginn, óvissa um orkuöflun, óvissa um umhverfi fyrirtækja, óvissa um fjármálakerfið o.s.frv. Herra forseti. Þetta er óásættanlegt.
Ríkisstjórn sem hefur enga sýn nema að ganga erlendum ríkjabandalögum á hönd í von um að þá séu vandamál hennar leyst á að fara frá. Ríkisstjórn sem lítur fram hjá miklum vanda íslenskra heimila á að fara frá. Ríkisstjórn sem rýrir kjör lífeyrisþega þannig að þeir eiga vart til hnífs og skeiðar á að fara frá. Ríkisstjórn sem hefur mistekist að koma á sátt í samfélaginu hlýtur að þurfa að víkja.
Ég fullyrði, herra forseti, að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hefur sett met í spillingu við ráðningu vina og kunningja. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur einkavæddi bankana í annað sinn og hefur ekki hugmynd um hverjir keyptu. Ég vil fá að vita það hjá hæstv. ríkisstjórn hverjir eiga íslensku bankana í dag.
Íslensk heimili súpa seyðið af stærsta bankaráni sögunnar. Ríkisstjórnin hefur brugðist íslenskum heimilum með því að draga of lengi að bregðast við og koma með óviðunandi lausnir, flækja þær lausnir of mikið.
Framsóknarflokkurinn flutti metnaðarfullar og efnismiklar tillögur um hvernig endurreisa mætti hagkerfi landsins og bjarga heimilunum. Þeim tillögum ýtti ríkisstjórnin út af borðinu. En hvað hefur komið í ljós? Nú vilja allir Lilju kveðið hafa. Herra forseti. Þannig er það bara. Nú viðurkenna flestir að réttlátast, einfaldast, fljótlegast og líklega ódýrast hefði verið að færa niður lán heimilanna með almennri aðgerð. Því segi ég, herra forseti: Svei, ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur fyrir að hunsa slíkar tillögur eingöngu vegna þess hvaðan þær komu. Slík pólitík var síðast rekin á Íslandi þegar sjónvarpið var í svart/hvítu.
Virðulegi forseti. Þrátt fyrir að ég telji það koma úr hörðustu átt að Sjálfstæðisflokkurinn leggi hér fram vantraust er ferill núverandi ríkisstjórnar slíkur að ekki er annað hægt en að samþykkja þá tillögu. Ríkisstjórn sem hefur nánast frá upphafi verið með það sem eitt helsta mál að halda völdum verður að fara frá. Ríkisstjórn verður að vera leiðandi í því að tala kjark í þjóð sína og tala til hennar, tala máli hennar. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hefur ekki gert það. Það er ekki nóg að berja sér á brjóst og tala um tiltekt og hreinsanir þegar það er augljóst að verið er að sópa hlutunum undir teppið.
Frú forseti. Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hefur ferðast um landið og lofað bót og betrun. (Forseti hringir.) Hún er einhver sá skrýtnasti ferðasirkus sem komið hefur til landsins.
Frú forseti. Við þurfum nýja ríkisstjórn, ríkisstjórn sem er tilbúin til að horfa til framtíðar.