139. löggjafarþing — 111. fundur, 13. apr. 2011.
vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.
751. mál
Forseti. Ég mæli ekki með því að þingrof verði samþykkt því að það er einfaldlega sett til höfuðs stjórnarskrárbreytingum og almennum lýðræðisumbótum sem og umbótum á kvótakerfinu. Ég legg því til að við lítum á þingrof sem möguleika og í eðlilegra samhengi við þjóðaratkvæðagreiðsluna um stjórnarskrárbreytingar. Mér finnst ekki tímabært að kalla eftir þingrofi í dag.