139. löggjafarþing — 112. fundur,  14. apr. 2011.

uppbygging orkufreks iðnaðar.

[10:51]
Horfa

umhverfisráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Það hefur borið við í þingsal að menn hafa talað megavöttin upp úr jörðinni og látið eins og þeir viti hvað undir liggur. Það er bara ekki svo. Það gildir einu hvort hv. þm. Tryggvi Þór Herbertsson talar um Þingeyjarsýslur, Þeistareykjasvæðið eða hvað það er, hann hefur ekki forsendu til að vita hversu mikil orka liggur þarna undir. Það hefur ekkert okkar. (TÞH: Ég les bara umhverfismatið.) Hann les bara umhverfismatið, sem er gott, en við vitum ekki hversu mikil orka er þarna undir. Hvorki ég sem hér stend né iðnaðarráðherra höfum gert ráð fyrir Torfajökulssvæðinu í þeim tölum sem við erum að ræða um. Við erum að tala um þau svæði sem hægt er að fara í án teljandi samfélagságreinings og sundrungar með þjóðinni. Finnst hv. þingmanni það ekki eftirsóknarvert? (TÞH: Jú, en þú ættir að geta talið þau upp.)

(Forseti (ÁRJ): Ekki samtöl við ræðumenn úr sal.)