139. löggjafarþing — 112. fundur,  14. apr. 2011.

Beina brautin.

[10:52]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf):

Frú forseti. Beina brautin er hluti af samkomulagi stjórnvalda við lánastofnanir um endurskipulagningu skulda lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Í umræðum á þinginu er mikið kallað eftir afskriftum hjá fyrirtækjum. Af hverju viljum við afskriftir hjá fyrirtækjum? Jú, það er til að þau komist í rekstrarhæft ástand og til að þau geti fjárfest þar með. Fjárfestingar þýða að fyrirtækin bæta og auka framleiðslu sína og þjónustu og þurfa að ráða til sín starfsfólk eða þurfa ekki að segja upp starfsfólki vegna erfiðra rekstrarskilyrða. Beina brautin stuðlar að aukinni verðmætasköpun og atvinnu á Íslandi.

Ég spyr því hæstv. efnahags- og viðskiptaráðherra hvort Beina brautin gangi eftir áætlun. Hvernig fylgir efnahags- og viðskiptaráðuneytið samkomulaginu eftir? Og ég vil inna hæstv. ráðherra eftir því hvort framkvæmdarvald hins opinbera þurfi ekki að grípa til tækja sem hvetja lánastofnanir til að flýta afskriftum jafnt frá fyrirtækjum sem heimilum. Þá væri ein leið í því t.d. hækkuð eiginfjárkrafa vegna lána í lengri vanskilum. Ég vil þá líka spyrja ráðherra hvort verið sé að skoða m.a. þessa leið eða jafnvel fleiri tæki sem eftirlitsstofnanir hafa í fórum sínum til að þrýsta á um að bankar flýti afskriftum skulda fyrirtækja og heimila.