139. löggjafarþing — 112. fundur,  14. apr. 2011.

Beina brautin.

[10:54]
Horfa

efnahags- og viðskiptaráðherra (Árni Páll Árnason) (Sf):

Virðulegi forseti. Með Beinu brautinni losuðum við um þá stíflu sem verið hafði lengi í bankakerfinu, að yfir höfuð yrði unnið úr skuldamálum lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Það er nú gert á grundvelli raunhæfs verðmats á fyrirtækjunum og raunsæs mats á möguleikum þeirra til að standa undir skuldum. Eftir stendur að framgangurinn er of hægur og ekki bara í málum lítilla og meðalstórra fyrirtækja, heldur almennt í meðferð skuldaúrvinnslu í fyrirtækjum. Það er alvarlegt vandamál bankakerfisins í landinu hversu hægt gengur í þessu efni. Það er algerlega óásættanlegt að horfa á vanskilahlutföll yfir 40% enn þá í bankakerfinu eins og staðan er í dag. Af hálfu ráðuneytisins er lögð á það þung áhersla að úr þessu verði bætt. Ég funda með bankastjórum síðar í dag til að fara yfir framkvæmd þessara mála því að það er ljóst að það verður enginn friður um bankastarfsemi í landinu ef bankakerfið vinnur ekki með okkur að því að leysa úr alvarlegasta efnahagsvanda þjóðarinnar sem við er að glíma í dag, sem er skuldsetning atvinnulífsins.

Við höfum kallað eftir því við Fjármálaeftirlitið að það fari vandlega ofan í saumana á þeim lánum sem eru í vanskilum og það verði dýrara fyrir bankana að hafa lán í vanskilum en nú er. Það á að kosta þá mikið að gera ekki neitt. Með sama hætti er Samkeppniseftirlitið að herða mjög að bönkunum hvað þetta varðar, takmarka þann tíma sem þeir geta haldið á fyrirtækjum sem þeir yfirtaka. Það þarf líka að stilla saman strengi milli Samkeppniseftirlitsins og Fjármálaeftirlitsins til að tryggt sé að bankarnir skili fyrirtækjunum ekki of skuldsettum út í atvinnulífið aftur. Ef þau eru áfram of skuldsett eru þau engum til gagns því að þau geta ekki ráðið til sín nýtt fólk og þau geta ekki ráðist í (Forseti hringir.) ný verkefni.