139. löggjafarþing — 112. fundur,  14. apr. 2011.

verndar- og nýtingaráætlun vegna virkjunar fallvatna og jarðhita.

77. mál
[11:11]
Horfa

Kristján L. Möller (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Eins og hér hefur komið fram erum við að greiða atkvæði um afar merkilegt frumvarp um verndar- og nýtingaráætlun og því ber auðvitað að fagna að innan iðnaðarnefndar hefur orðið full sátt. Nefndin stendur öll að breytingartillögunum og nefndarálitinu þó að tveir þingmenn hafi fyrirvara eins og gengur og gerist. Þetta er ákaflega mikilvægt og eins og hér hefur komið fram dæmi um það hvernig hægt er að vinna mál ef við gefum okkur tíma til að ná fullri samstöðu um þetta mál sem hefur lengi verið deiluefni. Vonandi er þetta leiðarvísir að meiri sátt um það þegar við klárum þessi rammalög að rammaáætlun. Þau voru fullþröngt afmörkuð með verndar- og nýtingaráætlun. Við vildum hafa hana aðeins víðtækari í nefndinni og köllum hana því verndar- og orkunýtingaráætlun þannig að hér koma inn sjávarfallavirkjanir og vindorka þó að auðvitað verði fyrsta rammaáætlun um vatnsafl og jarðvarma.

Virðulegi forseti. Ég þakka nefndarmönnum fyrir ákaflega góða vinnu í iðnaðarnefnd um þetta frumvarp og eins og ég segi fagna ég því (Forseti hringir.) að hér er full samstaða um það.