139. löggjafarþing — 112. fundur, 14. apr. 2011.
stofnun sameignarfyrirtækis um Orkuveitu Reykjavíkur.
624. mál
Frú forseti. Við ræðum enn einu sinni um viðrinið sameignarfélag sem er búið að fá eiginleika hlutafélags. Ég legg til að menn skoði að taka upp hlutafélagaformið með öllum sínum kostum og göllum — í staðinn fyrir að laga sameignarformið að Orkuveitu Reykjavíkur sem og Landsvirkjun og fleiri orkufyrirtækjum stígi menn skrefið stigið til fulls og kalli það opinbert hlutafélag, ohf.