139. löggjafarþing — 112. fundur,  14. apr. 2011.

tekjuskattur.

300. mál
[11:36]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Efnahags- og skattanefnd hefur gert þá breytingu á þessu máli að tryggja skattfrelsi sjúkdómatrygginga. Það er mikilvægt fyrir þá 40 þús. Íslendinga sem búa við slíkar tryggingar að vita að verði þeir fyrir alvarlegum veikindum muni ríkið ekki koma með himinháar skattkröfur á bæturnar sem þeir fá vegna veikinda sinna.

Ég fagna þeirri góðu samstöðu sem hefur tekist í þinginu um afgreiðslu málsins. Óþarft er að samþykkja breytingartillögu hv. þm. Lilju Mósesdóttur enda er Alþingi frjálst að því að meta fyrirkomulagið á komandi árum telji það ástæðu til þess þá.