139. löggjafarþing — 112. fundur,  14. apr. 2011.

þjónustuviðskipti á innri markaði Evrópska efnahagssvæðisins.

645. mál
[12:10]
Horfa

efnahags- og viðskiptaráðherra (Árni Páll Árnason) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er ómögulegt að vita hvert vatnið rennur í efnahagslífinu. Ég get ekki spáð fyrir um það hvaða þjónustuveitendur vilja nýta sér tækifæri til að veita þjónustu hér á landi. Aðalatriðið er að tækifærin verði opnuð með innleiðingu þessarar tilskipunar.