leit, rannsóknir og vinnsla kolvetnis.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir framsögu hennar. Ég velti nokkrum hlutum fyrir mér, aðallega því að í athugasemdum við frumvarpið á bls. 2 stendur að þessi breyting sé einn liður í undirbúningi að næsta útboði á sérleyfum. Ég velti fyrir mér hvaða aðrar breytingar muni koma til þingsins eða séu fyrirsjáanlegar. Í því sem ég náði að kynna mér í frumvarpsdrögunum eru reyndar nefndar tvær breytingar, annars vegar breyting á lögum nr. 170/2008, um skattlagningu kolvetnisvinnslu, og á lögum nr. 13/2001, um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis. Það sem ég er að fiska eftir, frú forseti, er hvort ráðherra geti á þessari stundu upplýst hvort aðrar breytingar séu fram undan því ég held að við séum sammála um að mikilvægt sé að við búum núna þannig um hnútana að þetta verði aðlaðandi en án þess þó að fórna öryggisþáttum og slíku. Ég fagna áherslu ráðherrans á öryggismál, ekki síst eftir slysin sem hafa orðið í Mexíkóflóa. Ég tel ekkert vit í að fara í einhverja áhættustarfsemi sem getur jafnvel stofnað í hættu gjöfulum fiskimiðum okkar eða öðru sem við eigum lífsviðurværi okkar meira og minna undir. Ég fagna því.
Ég vil líka, frú forseti, taka undir orð hv. þm. Kristjáns Þórs Júlíussonar varðandi rannsóknir og eflingu Háskólans á Akureyri og annarra stofnana fyrir norðan. Ég held að mikilvægt sé að nota þetta tækifæri í byggðalegum tilgangi og til að efla menntun og rannsóknir á þessu svæði. Fyrst og fremst er snýst spurning mín um hvaða aðrar breytingar kunni að liggja fyrir eða þurfi að gera.