vatnalög og rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu.
Virðulegi forseti. Ég held að þetta sé eitt af þeim atriðum sem mikilvægt er að verði tekin til umfjöllunar þegar málið gengur til nefndar og að við ræðum það í umræðunni.
Þegar ég las frumvarpið gat ég ekki betur séð en að framlenging á afnotarétti væri bundin við eitt skipti. Ég tel að í einhverjum tilvikum megi færa rök fyrir því að afnotahafi eigi heimtingu eða rétt á því að framlengingin verði endurtekin. Auðvitað er það alltaf háð vilja þess sem telur til réttar yfir auðlindinni hvort sem það er ríki, sveitarfélag eða félög á þeirra vegum. Ég tel að það sé mikilvægt að um þennan þátt málsins sé fjallað og að það sé alveg skýrt í lagatextanum hvernig skuli með fara ef slíkar aðstæður koma upp í framtíðinni.