139. löggjafarþing — 112. fundur,  14. apr. 2011.

vatnalög og rannsóknir og nýting á auðlindum í jörðu.

720. mál
[14:34]
Horfa

iðnaðarráðherra (Katrín Júlíusdóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég tel að hann þurfi a.m.k. að vera eitthvað styttri en 20 ár, en í því sambandi skipta langmestu máli, eins og í þessu líka, hin sameiginlegu markmið um nýtingu allra þessara auðlinda, hvort sem er í sjó eða á landi. Íslenska þjóðin á að fá sem allra mesta arðsemi út úr þessu. Það skiptir máli að við fáum auðlindarentu út úr nýtingu auðlinda okkar sem telur eitthvað af viti inn í þjóðarbúskapinn. Þar horfi ég til þess að 20 ár gætu hugsanlega verið of langur tími í sjávarútveginum til að ná því markmiði. Eins og hv. þingmaður veit höfum ég og minn flokkur verið fylgjandi því að láta markaðinn ráða að miklu leyti hvaða auðlindarenta kemur úr sjávarútvegi. Það hefur ekkert breyst. Ég er á þeirri skoðun ásamt samflokksmönnum mínum.