Byggðastofnun.
Virðulegi forseti. Ég hefði skilið það ef hv. þingmaður hefði þrumað þessari ræðu yfir flokkssystur sína, hv. fyrrverandi þingmann og fyrrverandi iðnaðarráðherra, Valgerði Sverrisdóttur, sem lagði það beinlínis til í frumvarpi að leggja niður Byggðastofnun. Það er sú sem hér stendur ekki að gera. Það sem hér er verið að gera er að ráðast í aðgerðir til þess að efla trú á Byggðastofnun, til þess að styrkja Byggðastofnun og til þess að færa hana til samræmis við aðrar sambærilegar stofnanir. Með því að fækka pólitískt skipuðum stjórnarmönnum úr sjö í fimm getur hv. þingmaður ekki í alvöru fullyrt, eins og hann gerði áðan, að verið sé að taka lungann úr stofnuninni. Hvers lags eiginlega endemis vitleysa er þetta? Það er innihald starfseminnar sem skiptir hér máli, virðulegi forseti. Það að fara úr sjö í fimm stjórnarmenn mun styrkja þessa stofnun og það mun styrkja ásýnd hennar. Það hefur ekki hjálpað Byggðastofnun hingað til og ímynd hennar að vera tekin út fyrir sviga og rekin með allt öðrum hætti en aðrar sambærilegar stofnanir.
Virðulegi forseti. Núna er þverpólitísk nefnd að störfum sem vinnur að því sem skiptir höfuðmáli fyrir Byggðastofnun til framtíðar litið og það er að skoða innihald hennar og hvernig hægt er að styrkja þá starfsemi sem þar fer fram. Það er verkefnið og þetta er einlægur vilji þess ráðherra sem hér stendur. Hv. þingmaður getur ekki staðið hér og skammað þann ráðherra og borið upp á hana að ætla sér að gera það sama og fulltrúi hans eigin flokks í þessu ráðuneyti ætlaði að gera fyrir nokkrum árum og, nota bene, sá ráðherra sem hér stendur barðist á móti. Ég mæli með því að hv. þingmaður skoði það ágæta minnihlutaálit sem kom frá samfylkingarþingmanninum í iðnaðarnefnd þegar komið var í veg fyrir að af niðurlagningu Byggðastofnunar yrði.