lokafjárlög 2009.
Hæstv. forseti. Ég vil í upphafi máls míns geta þess að frumvarp til lokafjárlaga er ásamt ríkisreikningi afar mikilvægt tæki fyrir þingið til að fylgjast með fjárreiðum ríkisins, bæði ríkissjóðs, einstakra stofnana og annarra sem undir eftirlitið heyra.
Eins og fram kom í máli hv. þm. Ásbjörns Óttarssonar áðan fer mikill tími þingsins á hverju hausti í að ræða fjárveitingar til hinna ýmsu liða í fjárlögum og oft verða miklar deilur um upphæðir sem ekki eru miklar í heildarsamhenginu. Sama á stundum við en þó ekki alltaf í sambandi við afgreiðslu fjáraukalaga. Hins vegar hefur sá þáttur sem lýtur að eftirliti með því að þeim fyrirmælum sem finna má í fjárlögum og fjáraukalögum sé fylgt eftir, sá eftirlitsþáttur með fjárreiðunum hefur fengið minni athygli í störfum þingsins en æskilegt er.
Ég tek mark á þeim yfirlýsingum sem hafa komið fram bæði í nefndarálitum og ræðum um að þingmenn séu sammála um að úr þessu verði að bæta, vinnubrögð verði að bæta í þessum efnum. Fjárlaganefndarmenn lýsa því yfir að þeir hyggist beita sér fyrir því að úr verði bætt og það er afar jákvætt því að við erum á svo mörgum sviðum um þessar mundir að ræða það hvernig við getum virkjað þingið betur í eftirlitshlutverki sínu. Þar hlýtur náttúrlega fjármálaþátturinn, fjárlagaþátturinn og fjárreiðuþátturinn, að vera með því mikilvægara sem við erum að fást við, eitt af mörgu sem við þurfum að sinna vel og ef til vill betur en gert hefur verið á undanförnum árum.
Fjárveitingavaldið er auðvitað hjá þinginu, eitt af meginhlutverkum þingsins er að ákveða fjárveitingar úr ríkissjóði og taka ákvarðanir um þær fjárhagslegu skuldbindingar aðrar sem á ríkissjóði lenda eða geta lent. Ákvarðanir í þeim efnum eiga ekki í grundvallaratriðum að vera teknar af framkvæmdarvaldinu. Framkvæmdarvaldið á að fylgja eftir þeim ákvörðunum sem þingið tekur en því miður hefur það verið lenska um langa hríð að í mörgum efnum hefur þingið ekki verið með á hendi það frumkvæði í þessum efnum sem þjóðskipan okkar gerir ráð fyrir. Þannig er allt of mikið um það að hinar raunverulegu ákvarðanir um útgjöld á vegum ríkisins séu teknar í ráðuneytum eða jafnvel einstökum stofnunum. Það er of algengt að ráðherrar eða undirmenn þeirra taki slíkar ákvarðanir og komi síðan til þingsins eftir dúk og disk og afli heimilda eftir á fyrir útgjöldum sem ekki hefur bara verið stofnað til heldur búið er að inna af hendi, greiðslur sem búið er að inna af hendi. Það er allt of algengt. Þetta er ekki nýtt vandamál en þetta er vandamál engu að síður sem þarf að taka á.
Sama má segja um aðrar fjárhagslegar skuldbindingar sem ríkinu er komið í, ef við getum orðað það svo. Í tengslum við það frumvarp sem hér er til umræðu kemur þar helst til skoðunar það sem lýtur að fjármálastofnunum þar sem ég er þeirrar skoðunar að gengið hafi verið of langt miðað við þær lagalegu heimildir sem fyrir hendi voru. Ég ætla ekki við þessa umræðu að fjalla um hvort þær ákvarðanir sem voru teknar voru réttar eða rangar, hvort ríkið átti að takast á hendur jafnmiklar skuldbindingar vegna þeirra fjármálastofnana sem hér hafa verið ræddar og raun bar vitni, ég ætla ekki að fara í það. Í sjálfu sér vissum við það þegar við setningu neyðarlaganna haustið 2008 að til aðgerða af þessu tagi kynni að koma en við gerðum okkur ekki grein fyrir í hve miklum mæli það væri.
Á því ári sem við erum með hér undir, árið 2009, kom hins vegar að því að framkvæma þurfti ýmis af þeim áformum sem uppi voru í sambandi við aðstoð, aðstoð við fjármálastofnanir eða aðstoð vegna falls fjármálastofnana. Mér virðist ljóst af því sem hér hefur komið fram í ræðum og nefndarálitum að aðferðin við að taka slíkar ákvarðanir hafi ekki verið rétt, að það hafi í rauninni ekki verið fylgt réttum reglum þegar fjármálaráðuneytið tók ákvarðanir og gaf yfirlýsingar í þeim efnum, og margar af þeim ákvörðunum hefðu annaðhvort þurft að eiga skýra stoð í lögum eða að slíkrar heimildar hefði þurft að afla hjá þinginu.
Ég vek athygli á því, hæstv. forseti, að í gögnum málsins kemur fram að Ríkisendurskoðun hefur gert margvíslegar athugasemdir við þetta. Ég held að engum dyljist að Ríkisendurskoðun hefur gert afar alvarlegar athugasemdir við það hvernig að þessu málum var staðið, alvarlegar athugasemdir þegar talað er um ámælisverð vinnubrögð og þess háttar. Það þarf mikið til að koma og það er eitthvað sem þarf að læra af.
Ég ætla ekki að halda uppi langri umræðu um þetta en mér fannst mikilvægt að koma þessum almennu sjónarmiðum á framfæri. Það skiptir máli í þessu sambandi að við séum meðvituð um það, alþingismenn, hvar fjárveitingavaldið liggur, hvar á að taka ákvarðanir um fjárveitingar, að ráðuneyti, ráðherrar eða forstöðumenn ríkisstofnana gangi ekki sjálfala og taki sínar ákvarðanir og komi síðan til okkar eftir dúk og disk og fái eftirásamþykki fyrir einhverju sem þegar er orðinn hlutur. Í því sambandi skiptir máli að þær áætlanir sem gerðar eru í fjárlögum séu bæði raunhæfar og skynsamlegar, að vel sé að verki staðið í sambandi við fjárlagagerðina sjálfa, en það skiptir líka máli að heimildir sem krefjast fjáraukalaga séu afgreiddar eins jafnóðum og hægt er. Og jafnframt auðvitað að lögð sé vinna í það eftirlit sem felst í því að ríkisreikningur og lokafjárlög koma til meðferðar í þinginu, að það sé eftirfylgni fyrir hendi, og eins og rætt hefur verið í þessari umræðu að sá tími verði styttur sem líður frá lokum fjárlagaársins og þangað til þessi þingskjöl og þingmál koma hér til umfjöllunar.