ávana- og fíkniefni og lyfjalög.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 65/1974, um ávana- og fíkniefni, og lyfjalögum, nr. 93/1994, með síðari breytingum. Það felst í flutningi leyfa og undanþágna til Lyfjastofnunar og gjaldtöku.
Heilbrigðisnefnd fékk á sinn fund Áslaugu Einarsdóttur og Laufeyju Helgu Guðmundsdóttur frá velferðarráðuneytinu. Þá bárust umsagnir frá Lyfjastofnun ríkisins, ríkislögreglustjóra og tollstjóranum í Reykjavík.
Í frumvarpinu er lagt til að veiting leyfa og undanþágna til inn- og útflutnings á ávana- og fíkniefnum verði flutt frá velferðarráðuneytinu til Lyfjastofnunar. Einnig er í frumvarpinu lagt til að greiða skuli gjald fyrir slík leyfi og undanþágur. Í frumvarpinu er ekki mælt fyrir um efnislegar breytingar á lögum um ávana- og fíkniefni heldur eingöngu verið að flytja framkvæmd verkefnisins frá velferðarráðuneyti til Lyfjastofnunar. Lyfjastofnun hefur sértækt eftirlit með ávana- og fíknilyfjum og liggur því beinast við að veiting leyfa og undanþágna eigi betur heima á verksviði hennar en ráðuneytisins.
Samkvæmt upplýsingum nefndarinnar eru undanþágur veittar lyfsölum, lyfjaframleiðendum og heildsölum. Einnig nota lögregla og rannsóknastofur örlítið af ávana- og fíkniefnum til samanburðar við ólöglega innflutt ávana- og fíkniefni og til rannsóknar. Samkvæmt upplýsingum nefndarinnar er efnunum almennt fargað að viðstöddum starfsmanni Lyfjastofnunar og lögreglu en nefndin telur að skoða þurfi sérstaklega förgun efna sem rannsóknastofur nota í starfi sínu því að fram til þessa hefur ekki verið fylgst með því hvort og þá hvernig rannsóknarstofur eyða þeim efnum sem þær nota til rannsókna.
Í frumvarpinu er jafnframt heimild til gjaldtöku sem gerir ráð fyrir að Lyfjastofnun fái heimild til að innheimta gjald fyrir umrædd leyfi og undanþágur. Fram til þessa hefur sá háttur ekki verið hafður á en eðlilegt má telja að fyrir slíkt leyfi sé greitt í ljósi þeirrar vinnu sem leyfisveitingar og undanþágur hafa í för með sér fyrir stjórnvöld. Eðli málsins samkvæmt ættu umsækjendur að bera þann kostnað og er það í samræmi við erlenda framkvæmd slíkra laga. Nefndin leggur hins vegar mikla áherslu á að gjaldið taki eingöngu mið af raunkostnaði sem hlýst af vinnu við veitingu leyfa og undanþágna.
Heilbrigðisnefnd leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi breytingu:
4. gr. orðist svo:
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Undir þetta nefndarálit skrifa Þuríður Backman, sem er formaður heilbrigðisnefndar, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Siv Friðleifsdóttir, Ólafur Þór Gunnarsson og Ragnheiður Ríkharðsdóttir.
Virðulegi forseti. Ég hef mælt fyrir nefndaráliti heilbrigðisnefndar í þessu máli.