139. löggjafarþing — 113. fundur,  15. apr. 2011.

fyrirkomulag umræðu um störf þingsins.

[11:09]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti hvetur hv. þingmenn til að fara að þingsköpum og ræða um fundarstjórn forseta undir þessum lið en ekki fara í efnislega umræðu. Forseti hefur farið hér að þingsköpum, hún hefur tekið hér menn eftir þeirri röð sem þeir hafa beðið um orðið. Það er sú regla sem gildir undir þessum lið og menn verða að hlíta hér þingsköpum.