sala sjávarafla o.fl.
Virðulegi forseti. Ég tek undir þá tillögu sem fram kemur frá minni hluta sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar um að vísa málinu til ríkisstjórnarinnar. Það er að mörgu leyti mjög áhugavert mál en eins og kemur fram í nefndaráliti minni hluta þarf að skoða hvaða leiðir eru færar til að selja veiddan afla þegar fyrir liggur að við munum fara að endurskoða fiskveiðistjórnarkerfið. Ég hef saknað þess mjög í umræðunni um breytingar á fiskveiðistjórnarkerfinu hvað lítið hefur verið rætt um þann hluta. Mat mitt er að meginástæðan fyrir þeim ágreiningi sem verið hefur um fiskveiðistjórnarkerfið sé fyrst og fremst aðgangur að aflanum. Ég hef skoðað þær tillögur sem fram hafa komið og þær umsagnir og aðrar hugmyndir sem uppi eru og tel að það sé mjög mikilvægt að málið komi aftur inn í þingið þegar hið boðaða frumvarp um breytingar á fiskveiðistjórnarkerfinu kemur hingað inn. Ég vonast til að menn hafi í huga að það er ekki markmið laga um fiskveiðistjórn að hámarka verðmætasköpunina (Forseti hringir.) hjá einstökum útgerðum heldur samfélagsins í heild (Gripið fram í: Heyr, heyr.) og tryggja atvinnu og byggð í landinu. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)