olíu- og gasrannsóknir á landgrunni Íslands undan Norðausturlandi.
Frú forseti. Að sjálfsögðu er hið þarfasta mál að rannsaka berglög á landgrunni Íslands og ekki síður út af Norðausturlandi en annars staðar. Að sjálfsögðu hafa menn áhuga á því vegna mögulegrar olíu- eða gasvinnslu þótt hafa verði alla fyrirvara á því. Ekki skal ég leggjast gegn því að slíkar rannsóknir fari fram, hafandi eytt ófáum vikum og dögum í að skríða m.a. um Tjörneslögin.
Ég verð að segja alveg eins og er að mér finnst þetta mál bera nokkuð sérkennilega að. Að mínu mati ætti það að vera hluti af rannsóknaráætlunum Orkustofnunar og tekið inn í fjárveitingaramma hennar. Ég tek undir með síðasta ræðumanni að það er nokkuð ankannalegt að Alþingi sjálft, fjárveitingavaldið, vísi því til framkvæmdarvaldsins að tryggja fjármögnun verkefnisins. Ég held að Alþingi þurfi að taka til skoðunar þegar verið er að afgreiða kostnað af tilefni sem þessu, að því fylgi kostnaðarmat frá Alþingi sjálfu, á sama hátt og stjórnarfrumvörpum þarf að fylgja slíkt kostnaðarmat þegar þau koma hingað inn. Ef fjárveitingavaldið vill ákveða fjárveitingar (Forseti hringir.) til einhverra verkefna á það að gera það sjálft en ekki vísa því út í bæ.