139. löggjafarþing — 116. fundur,  3. maí 2011.

flutningur Landhelgisgæslunnar -- fundur nefndar þingmanna og Evrópuþingsins o.fl.

[14:24]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Rætt hefur verið um aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu og þann þingmannafund sem hv. þm. Sigurður Kári Kristjánsson og hv. þm. Valgerður Bjarnadóttir skiptust á skoðunum um. Ég ætla ekki að fara nánar út í það en vil reyna að kanna hvort við getum orðið sammála um eitthvað þegar kemur að þessum málum. Ég held að það væri ágætisbragur á því.

Ég ætla ekki að fara yfir það hvort það var skynsamlegt eða óskynsamlegt hvernig að málum hefur verið staðið en í það minnsta er mikill málefnaágreiningur um Evrópusambandið innan húss og meðal þjóðarinnar. Það væri því æskilegt ef menn gætu komið sér saman um eitthvað eins og t.d. leikreglur, þ.e. hvernig menn ætla að haga þessum málum.

Ég hef af því áhyggjur að menn ætli að reyna að draga þessar aðildarviðræður á langinn að óþörfu. Á þessum þingmannafundi kom skýrt fram að það eru Íslendingar sem ráða hraðanum í þessari för. Það kom mjög skýrt fram, og spurði ég að því sjálfur, hjá fleiri en einum og fleiri en tveimur af þeim erlendu aðilum sem þarna voru. Ég vil spyrja hv. þm. Valgerði Bjarnadóttur að tvennu: Telur hún ekki skynsamlegt að við festum einhverja dagsetningu þannig að samninganefndin hafi ákveðinn tíma? Ef við skoðum reynslu Finna og Svía þá voru Finnar 2 ár 9 mánuði og 14 daga að klára þetta ferli og við ættum ekki að vera lengur að því. Er ekki skynsamlegt að við setjum einhverja dagsetningu á það hvenær þessu verði lokið og tökum t.d. mið af tímasetningu Finnlands? Ég legg líka til að við séum með hv. þingnefnd sem fylgist með þessum aðildarviðræðum til að koma í veg fyrir óþarfatortryggni því að næg er hún samt.