Stjórnarráð Íslands.
Virðulegi forseti. Ég tel að mjög góð reynsla sé af ráðherranefndum, ekki síst ráðherranefnd um efnahagsmál sem hefur verið starfandi um langan tíma í Stjórnarráðinu. Í henni eiga meðal annars sæti efnahagsráðherra, fjármálaráðherra og forsætisráðherra og þar er farið yfir stöðuna í efnahagsmálum. Ég held að af þeirri nefnd sé mjög góð raun. Ráðherrar í ríkisstjórn fá allar fundargerðir þeirrar nefndar, auk þess er auðvitað í ríkisstjórninni sjálfri meira og minna fjallað um þessi mál. Engar ákvarðanir eru teknar fram hjá ríkisstjórn að því er varðar meðferð mála sem eru rædd í ráðherranefndum. Ég held því að mjög góð reynsla sé af því.
Ég held líka að hv. þingmaður misskilji það mjög að verið sé að gera aðra ráðherra valdlausa eins og hún nefnir það með þeirri breytingu sem verið er að gera, bæði með skipan ráðherranefndar og með samhæfingu (Forseti hringir.) innan Stjórnarráðsins í ýmsum málum þegar verkefni ráðherra skarast, sem oft kemur fyrir.