139. löggjafarþing — 116. fundur,  3. maí 2011.

Stjórnarráð Íslands.

674. mál
[16:51]
Horfa

Sigurður Kári Kristjánsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Nú er staðan þannig að ríkisstjórnin hefur stuðning 32 hv. þingmanna. Hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur lýst því yfir að hann styðji frumvarpið ekki og hæstv. innanríkisráðherra hefur gert alvarlegar athugasemdir við það. Það er því vandséð að meiri hluti sé fyrir málinu hér á þingi.

Hæstv. forsætisráðherra gerir mikið úr því að frumvarpið byggi á sjónarmiðum sem fram koma annars vegar í skýrslu rannsóknarnefndar og hins vegar í skýrslu þingmannanefndar. Ég hef lesið þessar skýrslur spjaldanna á milli og ég finn þess ekki stað að í þeim sé lagt til að ráðist verði í þessar breytingar.

Í þriðja lagi langar mig að spyrja hæstv. forsætisráðherra að því hvort þetta frumvarp tengist eitthvað aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu. Í drögum að ályktun sameiginlegrar nefndar þingmanna Íslands og Evrópusambandsins er (Forseti hringir.) því sérstaklega fagnað, og ályktunardrögin voru samþykkt í Brussel, að ríkisstjórnin sé farin að hefjast handa við (Forseti hringir.) að sameina ráðuneyti eins og hæstv. ráðherra leggur til núna. Mig lagnar til að spyrja hvort frumkvæðið að þessu máli komi í rauninni frá (Forseti hringir.) Evrópusambandinu.