139. löggjafarþing — 116. fundur,  3. maí 2011.

Stjórnarráð Íslands.

674. mál
[17:27]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Þau atriði sem hv. þingmaður nefndi verða að sjálfsögðu tekin til umræðu innan allsherjarnefndar, hvort sem við köllum Barosso til okkar eða einhverja aðra fulltrúa Evrópusambandsins. Að vísu mundi ég segja að það stæði utanríkisnefnd kannski nær að fara í nánari greiningu á meðgöngunni á þessum dæmalausu ályktunardrögum sem hann vísar til, að fá einhverjar upplýsingar um hvernig plagg af þessu tagi verður til, því að þrátt fyrir að höfundarnir kunni að vera embættismenn Evrópusambandsins fá þeir upplýsingar einhvers staðar frá. Ég býst ekki við að þeir finni það upp hjá sjálfum sér að tengja t.d. þetta stjórnarráðsfrumvarp við Evrópusambandsumsóknina. Ég býst ekki við að þeir finni það upp hjá sjálfum sér eða láti sér detta í hug án tilefnis að t.d. (Forseti hringir.) Sóknaráætlun 20/20 tengist aðildarumsókn að Evrópusambandinu. Af hverju ætti þeir að finna upp á því? Það er einhver sem gefur þeim þær upplýsingar.