139. löggjafarþing — 116. fundur,  3. maí 2011.

Stjórnarráð Íslands.

674. mál
[18:17]
Horfa

Álfheiður Ingadóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Þetta voru nokkuð yfirgripsmiklar spurningar en ég vil segja að ég lagði áherslu á að draga upp þá þætti sem ég tel að við eigum órædda í þessari umræðu. Ég hlakka til að taka þá umræðu í hv. allsherjarnefnd.

Ég var spurð hvað mér þætti þá svona gott við þetta frumvarp og hvort ég mundi styðja það. Já, ég reikna að sjálfsögðu með því að styðja þetta frumvarp, en ég vek athygli á því að þingflokkur Vinstri grænna afgreiddi það með fyrirvara af ýmsum ástæðum. Ég hef gert grein fyrir nokkrum þeirra hér. Við teljum að sumu leyti að þetta frumvarp gangi of skammt hvað varðar heimildir ráðherra til að sinna því pólitíska stefnumótunarhlutverki sem hann þarf að hafa og rannsóknarnefnd Alþingis benti sérstaklega á að hann bæri ábyrgð á.

Af því að það hefur verið rætt svolítið í dag vil ég geta þess að ég styð eindregið að heiti ráðuneytanna verði ekki talin upp með tæmandi hætti í lögum. Ég tel mjög mikilvægt að ríkisstjórnir á hverjum tíma geti skipt með sér verkum eftir aðstæðum og eftir mannafla og að menn geti brugðist við utanaðkomandi atburðum, eins og til að mynda hruninu, með því að setja á stofn sérstök ráðuneyti til að sinna, kannski um tiltekinn tíma, sérstökum verkefnum. Þetta hafa nágrannaþjóðir okkar gert. Þannig er til að mynda í Noregi ráðuneyti sem fjallar um málefni barna. Eitt nýjasta ráðuneytið á Norðurlöndum er í Danmörku, ráðuneyti innanríkis- og heilbrigðismála. Þar taka menn skipulag stjórnarráðsins til endurskoðunar miðað við aðstæður og verkefni hverju sinni.

Þetta var um það hvað ég tel gott í þessu frumvarpi og ég mun í seinna andsvari svara hv. þingmanni frekar um breytingar á ráðuneytum.