139. löggjafarþing — 116. fundur,  3. maí 2011.

Stjórnarráð Íslands.

674. mál
[19:21]
Horfa

Álfheiður Ingadóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Umræðan er orðin ansi undarleg þegar líður á daginn og er farin að snúast um eitthvað allt annað en það sem er á dagskrá. Menn eru að ræða sín á milli um að einhverjir hafi einhvers staðar einhvern tímann ætlað að álykta á einhverjum fundi um eitthvað.

Ég spyr menn: Er einhver ein lína í Evrópusambandinu um hvernig á að skipa málum í ráðuneytum innan ríkisstjórna? Ég bið menn sem þannig tala að koma með dæmi um það sem sýna mér að eitthvert samræmi sé í því til að mynda í ríkisstjórn Danmerkur, sem er í Evrópusambandinu, og í ríkisstjórn Þýskalands, sem er líka í Evrópusambandinu, eða bara í ríkisstjórn Írlands. Er einhver ein lína þar? Um hvað eru menn að tala? Hvað eru menn að fabúlera? Við erum að ræða hvernig megi styrkja stjórnsýsluna í Stjórnarráði Íslands og gera hana sveigjanlegri þannig að hún verði betur í takt við kröfur tímans og að komið sé í veg fyrir að það sem gerðist fyrir hrun gerist aftur.

Þá erum við komin að foringjaræðinu. Það er kómískt að heyra, af því að hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson notaði það orð, við þessa umræðu hvernig hv. þingmaður talar um foringjaræði. Mig langar að spyrja hann hvernig hann túlkar það sem gerðist hér í einkavæðingu bankanna á sínum tíma. Var það ekki foringjaræði þegar tveir formenn stjórnmálaflokka og ráðherrar í ríkisstjórn Íslands tóku ákvörðun um einkavæðingu þeirra, án þess í reynd að spyrja kóng eða prest, og skiptu á milli sín og sinna flokka ríkisbönkunum? Eða var það ekki foringjaræði þegar sömu menn ákváðu að styðja innrásina í Írak? (GÞÞ: Í Líbíu?) (ÁsmD: Icesave?) Hér erum við að tala um allt aðra hluti. [Hlátur í þingsal.] Það er ekkert fyndið, hv. þingmaður, við árásirnar í Líbíu.