139. löggjafarþing — 116. fundur,  3. maí 2011.

Stjórnarráð Íslands.

674. mál
[19:25]
Horfa

Álfheiður Ingadóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég get ekki annað en haldið því til streitu að hvetja hv. þingmann til að ræða það mál sem hér er til umræðu. Ég hlýt að spyrja hann, sem hefur nú nokkra þingreynslu og reynslu af setu sem ráðherra í þáverandi heilbrigðisráðuneyti: Hvað er það sem hann telur að þurfi og eigi að breyta í Stjórnarráði Íslands? Varðandi starfsmannamál? Varðandi verkefni?

Hér er verið að leggja drög að nýju Stjórnarráði þar sem m.a. er kveðið á um ákveðið form í kringum samvinnu ráðherra, í kringum upplýsingaskyldu á milli ráðuneyta, í kringum samhæfingu verka sem snúa að fleiri en einu ráðuneyti. Kveðið er á um frumkvæðisskyldu forsætisráðherra í þeim efnum.

Hv. þingmaður átti sæti í hrunstjórninni og veit alveg hvar skórinn kreppti þar. Það er verið að bregðast við því. Ég hefði haldið miðað við reynslu hv. þingmanns af að hafa stjórnað ráðuneyti að hann væri með á nótunum. Ráðuneyti hans var að vísu svolítið dýrara en til stóð í fjárlögum því að ansi mikið var um verktakagreiðslur, ef ég man rétt. Ekki var öllum starfsmönnum ráðuneytisins treyst til að vinna þau verk sem hv. ráðherra taldi að þyrfti að vinna og mörg störf voru aðkeypt, sérstaklega við undirbúning að nýrri stofnun á sjúkratryggingasviði.

Ég hefði haft gaman af því að heyra hv. þingmann fara í efnislega umræðu við mig um hvernig ætti að skilja á milli hins pólitíska valds og stefnumótunarsviðs ráðherra annars vegar og stjórnsýslunnar hins vegar, sem er meginumræðuefnið og ég fitjaði upp á hér fyrr í dag. Þar hefur hv. þingmaður reynslu og aðrir komast ekki (Forseti hringir.) með tærnar þar sem hann hefur hælana í þeim efnum.