139. löggjafarþing — 117. fundur,  4. maí 2011.

störf þingsins.

[14:16]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S):

Frú forseti. Fyrir nokkrum dögum impraði ég á því vandamáli sem felst í ríkisábyrgðum og gat þess að hæstv. fjármálaráðherra hefði 18. nóvember sagt, með leyfi frú forseta:

„Innstæðurnar eru annars eðlis … Þar er um pólitíska stefnumarkandi yfirlýsingu stjórnvalda að ræða, ekki ríkisábyrgð í skilningnum ríkisábyrgðarlög eða annað í þeim dúr.“

Það er sem sagt ekki ríkisábyrgð á innstæðum. Ég vil spyrja hv. varaformann fjárlaganefndar, Björn Val Gíslason, hvort hann sé sama sinnis og hæstv. fjármálaráðherra, þ.e. að ekki sé ríkisábyrgð á innstæðum. Þá spyr maður sig hvers vegna verið sé að veita ríkisábyrgð í tengslum við gjaldþrot Sparisjóðs Keflavíkur, SPRON, Sjóvá o.s.frv.? Á grundvelli hvaða fjárlaga eða fjáraukalaga er sú ábyrgð veitt? Samkvæmt stjórnarskránni má ekki veita ríkisábyrgð nema með lögum eða fjárlögum.

Svo er það sem er enn alvarlegra: Fyrir Alþingi liggur frumvarp um nýtt innstæðutryggingarkerfi sem byggir á þeirri forsendu að ríkisábyrgð sé á innstæðum og verið sé að minnka hana með því frumvarpi. Ef ekki er ríkisábyrgð á innstæðum þá er forsenda þess frumvarps brostin. Það er frumvarp sem ég hef sagt að sé stórhættulegt því að það gengur miklu lengra en gamla tilskipunin í innstæðutryggingarkerfi Evrópusambandsins, sem Icesave-reikningarnir byggðu á, þarna er verið að víkka út ríkisábyrgðina, auka hana, hækka upphæðirnar sem eru tryggðar og allt á grundvelli þess að einhver ríkisábyrgð sé á innstæðum. Ég vil því gjarnan heyra skoðun hv. varaformanns fjárlaganefndar, (Forseti hringir.) hv. þm. Björns Vals Gíslasonar, á því hvort ríkisábyrgð sé á innstæðum.