rekstrargrundvöllur gagnavera á Íslandi.
Frú forseti. Aðkoma fjármálaráðuneytisins að málefnum gagnavera og sæstrengja eftir atvikum er auðvitað hefðbundin eigendaaðkoma og svo það sem snýr að skattalegu umhverfi þessara fyrirtækja. Að öðru leyti heyra þessi mál náttúrlega ekki sem slík undir fjármálaráðuneytið heldur fremur iðnaðarráðuneytið og/eða innanríkisráðuneytið sem fer með samgöngu- og fjarskiptamál.
Skattamál gagnaveranna ættu að vera þingmönnum vel kunn svo mikið hafa þau verið hér til umfjöllunar. Þar náðist sú niðurstaða í lok síðasta árs að gerðar voru tvær afar veigamiklar breytingar sem hafa þar mikil áhrif á. Annars vegar var gengið frá því hvernig skilgreina skyldi útflutning rafrænnar þjónustu sem er þá undanþegin skatti og leysir mál fyrir fleiri aðila en gagnaver sem slík. Hins vegar var niðurstaða Alþingis að ganga eins langt í raun og veru og menn telja að fært sé varðandi það að undanþiggja virðisaukaskatti innflutning á netþjónum og tengdum búnaði í eigu aðila sem heimilisfastir eru einhvers staðar á Evrópska efnahagssvæðinu, sem sagt ESB-ríki, EES-ríki og Færeyjar, jafnvel þó að þessir aðilar séu ekki með fasta starfsstöð hér á landi að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Þessi lagabreyting var samkvæmt venju eðlilega tilkynnt ESA, Eftirlitsstofnun Evrópska efnahagssvæðisins og nú er beðið viðbragða og svara frá stofnuninni.
Ég held að með þessum breytingum verði því ekki mótmælt að búið er að ganga eins langt og líklegt er að okkur sé stætt á ef ekki lengra í því að gera skattalegt umhverfi gagnavera hér eins hagstætt og kostur er. Það hlýtur auðvitað að þurfa að hafa í huga að að sjálfsögðu er það markmið líka að við höfum arð og eðlilegar skatttekjur af þessari starfsemi að því marki sem umsvif hennar falla til hér á landi. Samkvæmt öllum venjum í samskiptum ríkja, tvísköttunarsamningum og öðru sem hefðbundið er, er það venjan að menn skipti skatttekjum af slíkri starfsemi með tilteknum hætti.
Rekstrarumhverfi gagnavera að öðru leyti á að mega teljast mjög hagstætt í mörgu tilliti á Íslandi. Hér er í fyrsta lagi svalt loftslag og þar af leiðandi kælingarkostnaður lítill. Hér er hagstætt orkuverð frá endurnýjanlegum orkugjöfum sem er viðbótarplús fyrir markaðssetningu slíkra aðila að þeir byggi á endurnýjanlegri eða sjálfbærri orkunotkun. Hér er tiltölulega traust og öruggt umhverfi fyrir gagnaverin. Hér er ódýrt byggingarland og nóg rými. Hér er vel menntað og hæft starfsfólk og gengi krónunnar um þessar mundir gerir slíka fjárfestingu hagstæða. Ef þetta er ekki nóg og til viðbótar þarf að gera þetta nánast að algjörlega skattfrjálsri starfsemi þurfum við kannski að fara að endurmeta viðhorf okkar til þess hversu miklum arði ráðstöfun takmarkaðra orkulinda í þennan farveg frekar en annan skilar.
Nú tek ég fram að ég er mikill stuðningsmaður þess að þessi iðnaður byggist hér upp. Ég tel þetta mjög spennandi kost í vaxandi fjölbreytni okkar atvinnulífs. Þarna eru miklir framtíðarmöguleikar. Þarna eru vissulega verulegir möguleikar á virðisaukandi starfsemi í kringum gagnaverin, þ.e. þjónustu við þau, þjónustubúnaður og fleira. En það er auðvitað dálítið háð því hvernig úr þessum þáttum spilast hve mikill virðisauki verður eftir í íslenska hagkerfinu t.d. af hverri kílóvattstund sem seld er inn til fyrirtækjanna.
Varðandi sæstrengina er miklu meira en næg flutningsgeta til staðar og fullnægjandi öryggi, eins og hv. þingmaður reyndar kom inn á. Búið er að fjárfesta umtalsvert í þeim efnum enda var það augljóslega nauðsynlegt og forsenda þess að slíkur iðnaður gæti þá í kjölfarið byggst hér upp. Hvort kemur þá á undan eggið eða hænan? Menn byrja ekki á því að reisa gagnaver og landa samningum um þjónustu þeirra og fara svo að leggja sæstrenginn. Þannig gengur það ekki fyrir sig. Ísland þarf á traustum og öruggum gagnaflutningamöguleikum að halda hvort sem er. Það er ekkert áhorfsmál að við þurfum að hafa þetta öryggi.
Það er vissulega rétt að það er mikil fjárfesting t.d. í hinum nýja og öfluga streng Danice með gríðarlegri flutningsgetu en hann þýðir líka að verulegir vaxtarmöguleikar eru í kerfinu án frekari fjárfestinga. Varðandi verðlagninguna þar ætla ég ekki úr ræðustól á Alþingi að fara að ákveða verðið, það ræðst á viðskiptalegum forsendum. Að sjálfsögðu reyna stjórnendur þessara fyrirtækja að afla sér viðskipta og bjóða eins hagstæð kjör og þeim er kostur í því skyni. Þannig ráðast þeir hlutir í dag en ekki með því að ég eða hv. þm. Vigdís Hauksdóttir ákveðum gjaldskrána fyrir Farice eða Danice inni á Alþingi. Það er bara ekki þannig.
Fjárhagsleg endurskipulagning stendur yfir. Það mun (Forseti hringir.) fyrst og fremst verða hlutur íslenska ríkisins og Landsvirkjunar að sjá fyrir henni eins og málefnum ýmissa annarra hluthafa er komið en við munum þá gera það. Fyrir því eru heimildir í lögum að tryggja (Forseti hringir.) fullnægjandi endurfjármögnun þessarar starfsemi þannig að hún sé á traustum grunni og til boða handa vonandi framtíðarfjárfestingartækifærum á þessu sviði.