rekstrargrundvöllur gagnavera á Íslandi.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því eins og aðrir að þakka hv. málshefjanda fyrir umræðuna og ráðherra fyrir að vera hér til svara. Það er vitanlega hárrétt sem fram hefur komið, bæði hjá málshefjanda og hæstv. ráðherra, að það er mjög brýnt að umhverfið hér sé þannig að þessi fyrirtæki geti starfað á viðskiptalegum forsendum eins og kom fram í máli hv. þm. Magnúsar Orra Schrams. Við þurfum líka að gæta þess að það umhverfi sem við bjóðum upp á sé samkeppnishæft við það sem við erum að keppa við á þessum nótum án þess endilega að gefa eftir, og þar tek ég undir með hæstv. fjármálaráðherra, um að að sjálfsögðu verða þessi fyrirtæki eins og önnur að borga til samfélagsins, að leggja eitthvað af mörkum.
Við verðum hins vegar, að mínu viti, að fara yfir alla þá þætti sem taldir eru á einhvern hátt takmarkandi eða standa í vegi fyrir því að þessi starfsemi geti byggst upp hér. Við þurfum vitanlega líka að meta það út frá orkugetu okkar hversu stór þessi starfsemi getur verið. Við þurfum að fara yfir það umhverfi sem snýr að ríkisvaldinu. Ef ég er með réttar upplýsingar heldur ríkisvaldið, þ.e. ríkið sjálft og Landsvirkjun, á tæpum 55% hlut í Farice. Ef þar eru vandamál og stíflur, eins og menn hafa verið að nefna hér, er mikilvægt að við beitum okkur eins mikið og mögulegt er í því að leysa þá hnúta sem þar eru því að þetta er mjög áhugaverður iðnaður. Ísland hefur að því er virðist mjög margt að bjóða varðandi uppbyggingu í gagnaveraiðnaði, (Forseti hringir.) ekki síst vegna veðurfars og orkulindanna.