Stjórnarráð Íslands.
Frú forseti. Ég ítreka enn og aftur að þetta eru nánast eineggja tvíburar að þessu leyti, formfestan og foringjaræðið. Ef ekki er fylgt formfestu um ráðuneyti, þ.e. um verkefni ráðherra, og það heyrir undir forsætisráðherra að ákveða frá mánuði til mánaðar að flytja einstök verkefni, hugsanlega vegna óánægju með störf einstaks ráðherra eða stefnu, felur þetta formleysi í ákvörðun um verkaskiptingu að sjálfsögðu það í sér sem gagnrýnt er í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, oddvitaræðið. Það leiðir af sjálfu sér. Það þarf ekki lögfræðing til að túlka það, heldur væri nær að leita þá til íslenskufræðings, það liggur svo ljóst fyrir.