Stjórnarráð Íslands.
Virðulegi forseti. Ég er sammála hv. þingmanni um að formfesta sé nauðsynleg. Það er nauðsynlegt að vita hvernig Stjórnarráðið á að virka og það á ekki að breyta því á hverjum degi. Ég lít hins vegar ekki á það sem sérstaka léttúð eða neitt því um líkt þó að 40 ára lög séu endurskoðuð eins og hér á við. Þessi lög eru frá 1969, þá ég var 19 ára, nú er ég 61. Það er svolítið langur tími síðan lögin voru endurskoðuð.
Hann talar um að um grundvallarbreytingu sé að ræða í 4. og 5. gr. frumvarpsins. Þegar ég les greinarnar sé ég ekki neina grundvallarbreytingu. Það stendur í skýringu með 5. gr.:
„Í ákvæðinu er kveðið á um að ef stjórnarmálefni er flutt á milli ráðuneyta þá skuli ljúka meðferð ólokinna stjórnsýslumála í því ráðuneyti sem við málefni tekur. Reglan er tekin óbreytt úr gildandi lögum og þarfnast ekki frekari skýringar.“ (Forseti hringir.)
Getur hv. þingmaður útskýrt fyrir mér í hverju þessi mikla breyting felst?