Stjórnarráð Íslands.
Frú forseti. Í ljósi þess að eitt af því sem þingmannanefndin komst að var að oddvitaræði væri of mikið og að við þyrftum að auka hér valddreifingu, gegnsæi og fleira í þeim dúr, hvernig getum við breytt þessu frumvarpi sem nú liggur fyrir? Er ekki um veigameiri breytingar á þessu frumvarpi að ræða en svo að þau markmið náist sem sett voru á sínum tíma og sem allir alþingismenn samþykktu hér, niðurstöður þingmannanefndarinnar? Þarf ekki í rauninni að gjörbylta þessu frumvarpi? Hefði þá ekki verið eðlilegra að það hefði verið unnið öðruvísi og að aðkoma þess inn í þingið hefði ekki verið með þeim hætti að það nyti ekki meirihlutastuðnings innan ríkisstjórnarinnar? Það er ágreiningur um það í ríkisstjórninni, og liggur ekki ljóst fyrir að þetta er þá komið í algjört öngstræti?