139. löggjafarþing — 117. fundur,  4. maí 2011.

Stjórnarráð Íslands.

674. mál
[17:48]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Samráð og ekki samráð. Stundum getur samráð verið af hinu góða en mér finnst ég vera búinn að hlaupa býsna oft apríl hjá þeirri ágætu ríkisstjórn sem nú situr þegar boðað er til samráðs. Það var þó ekki það sem ég ætlaði að nefna hér. Ég velti fyrir mér hvort segja megi um þetta frumvarp — þ.e. ákveðna hluta þess, ég tek undir að það eru kaflar í því sem eru í raun bara mjög góðir — ég veit ekki hvort á að nota það orðfæri að hluti af þessu sé svolítið 2007, þ.e. að við ættum að hafa lært af efnahagshruninu að það sé betra að fleiri en færri komi að málum. Þess vegna langar mig að spyrja hv. þingmann hvort færa megi rök fyrir því að þetta frumvarp sé ekki til þess fallið að við hverfum frá þeirri taktík eða þeim vinnubrögðum sem voru notuð fyrir hrunið og í hruninu, þ.e. þegar einn eða mjög fáir, jafnvel bara einn aðili, tóku stórar og miklar ákvarðanir, hvort frumvarpið eins og það liggur fyrir hér ýti undir slíkt.

Hins vegar langar mig einnig að spyrja út í formfestuna vegna reynslu þingmannsins úr þingmannanefndinni, líkt og ég spurði hv. þm. Atla Gíslason: Er það hluti af formfestu að taka út öll heiti, öll nöfn? Er það ekki til að minnka formfestuna að vera ekki með heiti á (Forseti hringir.) ráðuneytum?