Stjórnarráð Íslands.
Frú forseti. Það var eiginlega dálítið skondið að heyra hv. þm. Gunnar Braga Sveinsson tala um að oddvitaræði hefði kannski einungis verið í hruninu. (Gripið fram í.) Ég held að það megi nú líta til þess að það hafi komið nokkuð oft fyrir í íslenskum stjórnmálum að stjórnmálaforingjar tveggja flokka sem sátu í ríkisstjórn hafi komið sér saman um hluti sem aðrir hafi síðan þurft að samþykkja án þess hugsanlega að hafa haft hugmynd um. Ég held að með þessu frumvarpi séum við ekki að fara aftur til ársins 2007. Eins og ég sagði áðan er oddvitaræði verklag og það er þeirra sem sitja sem oddvitar í ríkisstjórnum hverju sinni að ráða því hvernig þeir haga störfum sínum. Ef menn vilja beita hinu svokallaða oddvitaræði gera þeir það en það er í mínum huga eins og ég sagði áðan andstæðan við valddreifingu. Þetta er alltaf persónubundið hverjum og einum. Við getum tekist á um það, þingmenn stjórnar og stjórnarandstöðu, hvort okkur þyki ríkja oddvitaræði í núverandi ríkisstjórn á sama hátt og mönnum hefur kannski þótt ríkja í ríkisstjórnum undanfarinna ára.
Ég óttast það ekki í sjálfu sér og hef engar áhyggjur af því að við séum að hverfa aftur til ársins 2007, hvorki í þessu né öðru, af því að ég ætla rétt að vona að íslensk þjóð sem og þeir sem hafa gefið kost á sér til starfa fyrir þjóð og í bæjarstjórnum og annars staðar falli aldrei aftur í þá gryfju sem stjórnmálamenn og aðrir féllu í í aðdraganda hruns að fara jafnilla með þau veraldlegu gæði sem til voru og koma þjóðinni á þann vonarvöl sem hún komst í vegna athæfis ýmissa manna í samfélaginu, hvort heldur þeir voru í stjórnmálum eða einhverju öðru.