Stjórnarráð Íslands.
Virðulegi forseti. Ég held að óþolinmæði sé að minnsta kosti einkenni á þeim þingmanni sem hér stendur. Mér hefur líka oft fundist almennt einkenna íslensku þjóðina að við erum ekki sérstaklega þolinmóð, við viljum að hlutirnir gangi hratt fyrir sig. Við erum hins vegar að fást við mjög stór verkefni. Þetta frumvarp ætti að vera einna stærsta málið sem kemur inn í þing undir hefðbundnum kringumstæðum, en við erum búin að fást við mörg önnur mál á þessu löggjafarþingi og bíðum enn þá spennt eftir að frumvarp um breytingu á fiskveiðistjórnarkerfi komi inn svo ég nefni dæmi.
Eins og ég benti á tel ég að þetta frumvarp sé skref í rétta átt. Við erum að tala hér um Stjórnarráðið en við gætum hins vegar líka að mörgu leyti litið meira í eigin barm. Við birtum ekki fundargerðir héðan. Við sýnum ekki frá nefndafundum sem við sitjum hér nema einstökum opnum fundum. Ég held að það sé mjög mikilvægt þegar við tölum um að við viljum gera auknar kröfur á stjórnsýsluna að við séum líka tilbúin til að horfa á hvernig við vinnum sjálf og gera sömu kröfur til okkar. Ég held að það væri mjög mikilvægt að við ynnum líka hratt í nýju frumvarpi um þingsköp Alþingis.
Eitt af því sem ég ætlaði að nefna hér og komst því miður ekki í nema í lok minnar ræðu er tillaga um að þingmenn víki af þingi þegar þeir verða ráðherrar. Ég hef verið mjög fylgjandi því. Ég hef á móti talið að það þyrfti að styrkja stjórnarandstöðuna, m.a. með formennsku í nefndum og stjórnarskrárbreytingu, að minni hluti þings geti vísað málum í þjóðaratkvæði. Ég næ vonandi að koma betur að þessu í seinna andsvari.