Stjórnarráð Íslands.
Forseti. Það er alltaf öðru hverju verið að brjóta einhverjar hefðir. Ég hefði t.d. talið það brot á hefðum að við værum að fjalla hér um það sem kallað var í umræðunni í gær, líklega seint í gærkvöldi, að þetta frumvarp í allri sinni lengd væri eitthvert lengsta uppsagnarbréf sem fyrirfyndist í sögu þingsins og sú uppsögn beindist að hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Nú skal ég ekki dæma um hvort svo er en umræðan í stjórnarmeirihlutanum bendir hins vegar til þess að þessu sé beint að því tiltekna ráðuneyti og við getum líka litið til reynslunnar og vinnunnar við það að gera breytingar á Stjórnarráðinu í tengslum við það að fullnusta þau ákvæði stjórnarsáttmálans sem kvað á um breytingar á ráðuneytaskipaninni. Það er einhver vandræðagangur þarna inni, það er verið að reyna að finna einhverja skildi til að skjóta fyrir þann vandræðagang og það hefur því miður ekki gengið nægilega vel hjá hæstv. forsætisráðherra. Það væri æskilegt að málið væri betur unnið hjá hæstv. ráðherra.